Ekki kemur á óvart að einmitt þessi stærð jepplings sé næsti nýi bíll Kia, en bílar í þessum flokki eru einkar vinsælir um allan heim nú. Hönnun Kia Stonic er djarfleg, líkt og á einmitt við bæði Nissan Juke og Toyota C-HR bílana og svo virðist sem í þessum flokki bíla þori bílaframleiðendur hvað mest að sýna djarfleika í hönnun.
Að innan minnir útlitið mjög á nýja kynslóð Kia Rio fólksbílsins og segja má reyndar að hann sé mjög nálægt því að vera alveg eins. Má því búast við að Kia sé að spara sér mikið fé í því að halda þessum tveimur bílum svo til með sama útliti og það skýrir ef til vill líka hversu stutt er í útkomu þessa flotta bíls.
Kia ætlar að bjóða kaupendum að persónugera Stonic að meira marki en Kia hefur áður boðið með margskonar litaútfærslum að innan, nokkrum útlitsíhlutum til skreytingar, mörgum gerðum af felgum og vali um marga liti að utan.

