?Það er alltaf verið að finna einhverjar afsakanir fyrir að gera svona brjálæðislega hluti. Þegar maður er kominn á minn aldur eru ýmsir möguleikar. Þrjátíu og fimm ára starfsafmæli er ekki verra en hvað annað, það er gaman að upplifa það,? segir hann.
Meðflytjendur Mótettukórsins að þessu sinni eru á heimsmælikvarða. Alþjóðlega barokksveitin í Hallgrímskirkju er skipuð einvala liði hljóðfæraleikara víða að úr heiminum og konsertmeistari er hinn finnski Tuomo Suni. Hörður hælir honum á hvert reipi. „Tuomo Suni er alger lykilmaður. Hann er afar metnaðarfullur fyrir hönd þessarar sveitar og kemur sjálfur svo vel undirbúinn að heilmikill tími sparast á æfingum.“

Það var Árni Heimir hjá Sinfóníunni sem sagði mér frá Hönnuh og ég var inni á síðu agents erlendis að leita að kontratenór þegar ég rakst á nafnið hennar. Spurði hana í tölvupósti hvort hún væri laus til að syngja H-messuna á þessum tíma. Hún svaraði um hæl að hún vildi ekkert í heiminum frekar gera. Síðar uppgötvaðist að ég og mamma hennar höfðum verið saman í tónlistarskólanum á Akureyri sem börn og að við hjónin höfðum hitt þær mæðgur einu sinni á jólaskemmtun í Þýskalandi.

Hörður viðurkennir ekki stress vegna tónleikanna heldur eftirvæntingu. ?Ég þekki verkið. Þetta er í þriðja sinn sem ég tek það upp, spilaði orgelpartinn einu sinni með Pólýfónkórnum og söng það einu sinni á námsárunum.?
Tónleikarnir verða tvennir um helgina, á laugardag og sunnudag, báða dagana klukkan 17.