„Við erum í skýjunum yfir að fá að hita upp fyrir goðsagnirnar í Dinosaur Jr! Lou Barlow og J Mascis eru tvímælalaust snillingar og við hlökkum alveg geðveikt til að deila sviði með þeim. Þeir hafa haft töluverð áhrif á tónsmíðar Oyama, og okkur sem tónlistarfólk,“ segja meðlimir Oyama í tilkynningunni.
Oyama er Reykvísk hljómsveit sem spilar jaðarrokk í anda tíunda áratugarins, sem þau kalla gjarnan sveimrokk. Í lagasmíðum sínum sækja meðlimir Oyama mikinn innblástur í Dinosaur Jr., My Bloody Valentine, Sonic Youth, Slowdive og fleiri sveitir á svipuðum nótum.
Oyama gaf sjálf út fyrstu þröngskífu sína, I Wanna, árið 2013, og breiðskífan Coolboy kom svo út hjá 12 Tónum árið 2014 við góðar undirtektir. Sveitin hefur á stuttum ferli náð ágætum árangri og vakið athygli víða um heim, og gerði til að mynda útgáfusamninga vegna Coolboy bæði við Topshelf Record í Bandaríkjunum og Imperial Records í Japan. Sveitin fór svo í tónleikaferð um Japan til að fylgja plötunni eftir. Oyama hafa einnig komið fram á The Great Escape í Bretlandi, Eurosonic í Hollandi og By:Larm í Noregi, svo fátt eitt sé nefnt.
Síðastliðið vor gaf sveitin út smáskífuna Handsome Devil sem náði 17. sæti á viral spotify top 50 vinsældalista Billboard og eru þau um þessar mundir að vinna að meira efni fyrir næstu breiðskífu. Miðasala fer fram á midi.is.