Bale ólmur í að spila í heimalandinu Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 30. maí 2017 19:30 Bale bregður á leik með Luka Modric og Cristiano Ronaldo. Vísir/Getty
Gareth Bale heldur í vonina um að hann geti spilað með liði sínu, Real Madrid, gegn Juventus í úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu á laugardagskvöldið. Bale hefur ekki spilað með Real síðan hann meiddist á kálfa í leik gegn Barcelona þann 23. apríl síðastliðinn. Isco hefur nýtt tækifærið vel í fjarveru Bale og Zinedine Zidane, stjóri Real, þarf nú að velja á milli þeirra fyrir stórleikinn á laugardag. Hann fer fram í Cardiff í Wales, heimalandi Bale. „Það er eðlilegt að það sé rætt um þessi mál. Báðir eru mikilvægir leikmenn og allir mega hafa sína skoðun. En ég læt engan hafa áhrif á mig,“ sagði Zidane á blaðamannafundi í dag. „Það sem mestu máli skiptir er að allir séu klárir í slaginn og tilbúinir í þennan leik. Ég þarf ekkert að segja við Gareth, hann er tilbúinn og ólmur í að fá að spila þennan leik vegna þess að hann er í hans heimalandi.“ Meiðsli Bale hafa gert það að verkum að hann hefur verið í byrjunarliði Real Madrid alls 24 sinnum á þessu tímabili í öllum keppnum. Hann hefur ekki komið við sögu í færri leikjum yfir heilt tímabil síðan hann kom frá Tottenham árið 2013. Hann hefur þó reynst Real Madrid afar mikilvægur í úrslitaleikjum og skorað í tveimur þeirra auk þess sem að hann lagði upp mark í þeim þriðja.
Meistaradeild Evrópu Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport „Hún var frábær eiginkona, mögnuð móðir sem og amma“ Fótbolti Bellingham kallaði dómarann skíthæl Fótbolti Albert skoraði tvö í fyrsta leiknum fyrir Fiorentina Fótbolti Thelma Norður-Evrópumeistari í stökki Sport „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ Enski boltinn Dubois rústaði Joshua: „Ég er stríðsmaður allt til enda“ Sport McGregor fær ekki keppinaut fyrr en hann er leikfær á ný Sport „Allir vilja að við verðum þurrkaðir af yfirborði jarðar“ Enski boltinn „Það hlaut að koma að því“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Albert skoraði tvö í fyrsta leiknum fyrir Fiorentina Bellingham kallaði dómarann skíthæl Gerðu grín að Mourinho: Sá grenjandi „Allir vilja að við verðum þurrkaðir af yfirborði jarðar“ „Hún var frábær eiginkona, mögnuð móðir sem og amma“ „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ Jafnt hjá PSG og Galatasaray vann stórleikinn í Tyrklandi Setja pressu á Barcelona með sigri Sjáðu mark Brynjars Inga og stoðsendingu Viðars Ara „Ekki jafn auðvelt og lokatölurnar gáfu til kynna“ „Við fórum beint úr því að vera ömurlegir í frábærir“ Þriðja markalausa jafntefli Juventus í röð „Það hlaut að koma að því“ Gestirnir ívið betri en engin mörk skoruð Uppgjörið: KA bikarmeistari í fyrsta sinn Rúnar Þór lagði upp og setti boltann í eigið net Willum Þór gaf stoðsendingu Fulham fyrst til að vinna Newcastle og dramatík í Birmingham og Southampton Spurs vann þrátt fyrir að lenda undir eftir hálfa mínútu Díaz með tvö og Liverpool tyllti sér á toppinn Bayern búið að skora tuttugu mörk í síðustu þremur leikjum Selfoss og KFA mætast í úrslitum Ásdís Karen skoraði í þriðja sigri Lillestrøm í röð Sjö KR-ingar heiðraðir á Anfield Orri í byrjunarliði Real Sociedad sem mistókst enn og aftur að skora Jackson í stuði þegar Chelsea fór létt með West Ham Lið Ísaks og Valgeirs bjargaði stigi á dramatískan hátt Endurkoma hjá Dagnýju „Er ekki bara kominn tími til að breyta þessu?“ Pössuðu að leikmenn Fulham væru aldrei einar með Al Fayed Sjá meira