Goldman Sachs Group hefur gengist við því að hafa keypt venesúelsk skuldabréf á brunaútsölu. Stjórnarandstaðan þar í landi hefur gagnrýnt fjárfestingarbankann harðlega og sakað hann um að fjármagna ríkisstjórn forsetans Nicolas Maduro. Ríkisstjórninni hefur verið mótmælt af tugþúsundum svo vikum skiptir.
Leiðtogi stjórnarandstöðunnar sakaði bankann um að fjármagna „ofríki“ eftir að Wall Street Journal greindi frá því að Goldman Sachs hefði keypt skuldabréf í ríkisolíufélaginu PDVSA, langt undir markaðsvirði, fyrir 2.8 milljarða dala, um 280 milljarða króna.
Bankinn var í hópi félaga sem keypti tæplega 30 prósenta hlut í Arion banka af Kaupþingi í mars síðastliðnum.
„Við keyptum þessi skuldabréf, sem gefin voru út árið 2014, á eftirmarkaði af miðlara og áttum ekki í neinum samskiptum við venesúelsk stjórnvöld,“ segir í yfirlýsingu sem Goldman Sachs sendi frá sér í gær.
Sjá einnig: Sjálfskaparvíti Venesúela: Sósíalíska draumaríkið sem kollvarpaðist í martröð
„Við gerum okkur grein fyrir því að ástandið er flókið og í stöðugri þróun og að Venesúela standi á tímamótum. Við erum sammála því að lífsskilyrði þar verði að batna og fjárfestingin er til marks um að við höfum trú á að þróunin verði á þá leið.“
Í yfirlýsingunni var fjöldi hlutabréfa og verð þeirra ekki tilgreint.
Miðstýrt áætlanahagkerfi Venesúela hefur átt í erfiðleikum með að fóta sig eftir að heimsmarkaðsverð á olíu tók að hríðlækka um mitt ár 2014. Hin óvinsæla ríkisstjórn Maduros hefur því í auknum mæli þurft að reiða sig á hvers kyns fjármálagerninga og sölu ríkiseigna til að laða að erlenda fjárfesta.
Andstæðingar Maduros hafa undanfarna tvo mánuði mótmælt á götum Caracas og annarra stórborga landsins og krafist kosninga. Um 60 mótmælendur hafa látið lífið í átökum við lögreglu.
Kaupandi í Arion sagður fjármagna ofríki með fjárfestingum sínum í Venesúela

Tengdar fréttir

Boðað til allsherjar mótmæla í Venesúela á morgun
Ekkert lát er á mótmælahrinunni í Venesúela þar sem þess er krafist að Nicolas Maduro, forseti landsins, fari frá völdum.

Þúsundir íbúa Venesúela flykkjast til Kólumbíu til matarinnkaupa
Landamæri ríkjanna voru opnuð um skamma hríð en mikil skortur er á helstu nauðsynjum í Venesúela.

Sautján ára piltur skotinn til bana í átökunum í Venesúela
Þrír voru skotnir til bana í mótmælum í Venesúela í dag, þar af einn sautján ára piltur. Hinir tveir voru rúmlega þrítugir. Mótmælin hafa nú staðið yfir í sex vikur samfleytt og er fjöldi látinna kominn í fjörutíu og tvo.

Sjálfskaparvíti Venesúela: Sósíalíska draumaríkið sem kollvarpaðist í martröð
Morðtíðni er með því hæsta í heiminum, verðbólga er með því hæsta í heiminum og óöld ríkir. Hvað fór úrskeiðis?