Hann er í raun ári líkur honum og er víst svipaður af stærð. Hvort þessum bíl, ef hann fer í framleiðslu, er ætlað einmitt að keppa á Bandaríkjamarkaði er óljóst ennþá, en þá yrði honum vafalaust ætlað að keppa við endurborinn Ford Bronco og Jeep Wrangler bílana þar.
Bíllinn er ansi kantaður og af útlitinu að dæma vafalaust ætlaður ungu fólki með ævintýraþrá. Aftan í bílnum er bæði kælibox og hitabox og á hann fyrir vikið að vera tilbúinn í skyndiferðir þeirra sem þrá ævintýri. Á milli framsæta bílsins er svefnpoki frá North Face sem þjónar sem armpúði ef hann er ekki í notkun, en af þessu má sjá að bíllinn er vel útbúinn til ferðalaga. Bíllinn er með fjögurra strokka vél og er fjórhjóladrifinn, en ekki er vitað um afl vélarinnar.





