Er þetta næsti jeppi Toyota? Finnur Thorlacius skrifar 12. apríl 2017 15:25 Toyota FT-4X Concept.
Þessum myndum hefur verið lekið út af tilraunabíl frá Toyota sem fengið hefur nafnið Toyota FT-4X Concept, en hann verður sýndur á komandi bílasýningu í New York. Ekki mikið er vitað um bílinn en af útlitinu að dæma gæti hér fullt eins farið arftaki Toyota FJ Cruiser jeppans sem aðallega var beint að Bandaríkjamarkaði. Hann er í raun ári líkur honum og er víst svipaður af stærð. Hvort þessum bíl, ef hann fer í framleiðslu, er ætlað einmitt að keppa á Bandaríkjamarkaði er óljóst ennþá, en þá yrði honum vafalaust ætlað að keppa við endurborinn Ford Bronco og Jeep Wrangler bílana þar. Bíllinn er ansi kantaður og af útlitinu að dæma vafalaust ætlaður ungu fólki með ævintýraþrá. Aftan í bílnum er bæði kælibox og hitabox og á hann fyrir vikið að vera tilbúinn í skyndiferðir þeirra sem þrá ævintýri. Á milli framsæta bílsins er svefnpoki frá North Face sem þjónar sem armpúði ef hann er ekki í notkun, en af þessu má sjá að bíllinn er vel útbúinn til ferðalaga. Bíllinn er með fjögurra strokka vél og er fjórhjóladrifinn, en ekki er vitað um afl vélarinnar.Kantaður í meira lagi, en flottur.Bæði er hægð að opna afturhurðirnar til hálfs og í einu að fullu.Flottur og framúrstefnulegur að innan.North Face bakpokinn sem armpúði.Með aftursætin niðri.Stór farnagursopnun og nægt pláss með sætin niðri.
Mest lesið Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Innlent Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Geri málið tortryggilegt að neita að svara Innlent