Snjókoma á heiðunum Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 2. apríl 2017 08:03 Snjókomu er spáð fram undir hádegi í dag. Vísir/Anton
Snjókomu er spáð á á Hellisheiði, Mosfellsheiði og Lyngdalsheiði frá því snemma í morgun og fram undir hádegi í dag þegar það hlánar, að því er kemur fram í ábendingum veðurfræðings hjá Vegagerðinni. Eins er gert ráð fyrir snjókomu á fjallvegum norðanlands og á Vestfjörðum um tíma nærri hádegi, en á Steigrímsfjarðarheiði er spáð talsverðu hríðarkófi með norðaustan 16-19 metrum á sekúndu frá því skömmu fyrir hádegi og fram undir kvöld. Vegir eru að mestu greiðfærir á Suður- og Vesturlandi en á Vestfjörðum eru hálkublettir, hálka eða hálkublettir á nokkrum fjallvegum en víðast greiðfært á láglendi. Á Norður- og Austurlandi eru vegir víða auðir en þó eru hálkublettir eða hálka á nokkrum fjallvegum. Greiðfært er á Suðausturlandi.Veðurhorfur á landinuSuðaustan 13-20 m/s með morgninum og talsverð rigning sunnan og vestanlands, sums staðar hvassari í vindstrengjum við fjöll. Hægari fyrir norðan og austan og dálítil snjókoma eða slydda, en bætir einnig í vind þar eftir hádegi og fer að rigna. Sunnan 8-15 undir kvöld með súld og rigningu, einkum á sunnan- og vestanverðu landinu. Hlýnandi veður, hiti 5 til 10 stig í kvöld. Suðvestlægari á morgun með úrkomu og kólnandi veðri, en þurrt og hlýtt norðaustantil fram eftir degi.Veðurhorfur á landinu næstu dagaÁ mánudag: Suðlæg átt 5-13 og rigning, en snýst í suðvestan 8-15 með éljum eftir hádegi, fyrst vestantil, en norðaustan 13-20 og slydda eða snjókoma norðantil um kvöldið. Kólnandi veður.Á þriðjudag: Norðan og norðvestan hvassviðri eða stormur og snjókoma og vægt frost, en úrkomulítið sunnantil á landinu og yfirleitt frostlaust. Hægari og úrkomuminna um kvöldið, en léttir til sunnanlands og frystir.Á miðvikudag: Gengur í sunnan 5-13 með rigningu, en slyddu eða snjókomu fyrir norðan, fyrst suðvestantil á landinu. Hlýnar í veðri, einkum sunnanlands.Á fimmtudag: Suðaustlæg átt og víða dálítil rigning, en slydda fyrir norðan. Hiti um eða yfir frostmarki að deginum.Á föstudag: Útlit fyrir vaxandi norðaustanátt með snjókomu eða slyddu og kólnandi veðri.Á laugardag: Líkur á norðlægri átt. Él á víð og dreif og kalt í veðri.
Veður Mest lesið Elduðu úti, óðu yfir vaktstjórann og fylltu matsalinn Innlent Létu Staðarskála ekki duga og tóku yfir pitsustað Innlent Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Tálbeitan var með einkabílstjóra og gisti á Edition Innlent Bauð leyniupptökur af spillingu í nafni ísraelsks njósnafyrirtækis Innlent Sagði að Þórdís myndi undirrita vegna tengsla Bjarna við Hval Innlent „Ásakanir Jóns Gunnarssonar eru rangar“ Innlent Ekki púað á Snorra Innlent Hátt í 400 kynlífsmyndböndum lekið í mögulegu samsæri Erlent „Ásakanir Svandísar í minn garð eru lygi frá rótum“ Innlent Fleiri fréttir Sóttvarnaraðgerðir „aldeilis ekki“ meiri en í Svíþjóð Bíll festist eftir aurskriðu við Dýrafjarðargöng Létu Staðarskála ekki duga og tóku yfir pitsustað Hrafnar opna lokaðan póstkassa eins og ekkert sé Fyrrverandi félagsmálaráðherra eigi eftir að svara í máli Yazans Hafi ekki sakað blaðamenn um hleranir: „Ég sagði það ekki og hef hvergi sagt það“ „Gæsahúð, án gríns“ Sagði að Þórdís myndi undirrita vegna tengsla Bjarna við Hval Leynilegar upptökur og hrafnar sem tæta í sig reikninga fólks Í gæsluvarðhald vegna alvarlegra ofbeldisbrota í Hafnarfirði Bauð leyniupptökur af spillingu í nafni ísraelsks njósnafyrirtækis Bein útsending: Tekist á um samgöngur í Norðvesturkjördæmi Hafa tilkynnt E. coli veikindin til Sjóvá Ók á sjö kindur og drap þær Ekki púað á Snorra „Ásakanir Svandísar í minn garð eru lygi frá rótum“ „Ásakanir Jóns Gunnarssonar eru rangar“ Elduðu úti, óðu yfir vaktstjórann og fylltu matsalinn Nauðsynlegt að sameinast um aðgerðir í jafnréttismálum Tálbeita á Edition og vegklæðning flettist af í Öxnadal Bein útsending: Heimsþing kvenleiðtoga Settur forstjóri skipaður forstjóri Sautján sóttu um embætti skrifstofustjóra fjármála Pallborðið: Hvaða lausnir bjóða flokkarnir? Fimm prósent segja innflytjendamálin mikilvægust Verðlaunuð fyrir að berjast gegn slúðri Tveir af fimm telja hvalveiðar veikja stöðu Íslands í alþjóðlegum viðskiptum Ósammála því að skoðanakannanir séu ekki nákvæmar Óvenju margar bilanir í götulýsingu í Kópavogbæ Tálbeitan var með einkabílstjóra og gisti á Edition Sjá meira