Glamour

Anna Wintour varð amma um helgina

Ritstjórn skrifar
Anna Wintour er orðin amma.
Anna Wintour er orðin amma.
Anna Wintour, sem er ritstjóri bandaríska Vogue og ein áhrifamesta konan í tískuheiminum, eignaðist sitt fyrsta barnabarn um helgina. Sonur hennar, Charlie Shaffer, eignaðist stúlku ásamt Elizabeth eiginkonu sinni. 

Stúlkubarnið hefur hlotið nafnið Caroline. Charlie og Elizabeth giftu sig árið 2014 á heimili Wintour í New York. Þau kynntust þegar þau stunduðu bæði nám við Oxford háskólann í Englandi. Áætla má að Anna sé í skýjunum yfir nýjasta fjölskyldumeðliminum. Það er aldrei að vita hvort að lögð verði meiri áhersla á barnaföt í næstu tölublöðum Vogue. 

Welcome little Caroline and congrats @lizzyshaff and @cwshaffer. Looking forward to many more chic hats!!!

A post shared by beeshaffer (@beeshaffer) on



×