Bjútíbiblía Glamour er komin út Ritstjórn skrifar 6. apríl 2017 08:30 Myndir/Silja Magg/Glamour/Getty
Er ekki gulur litur páskanna? Aprílblað Glamour er komið út og er að venju stútfullt af fjölbreyttu efni! Forsíðuþátturinn er úr smiðju Silju Magg þar sem persónulegur stíll er rauði þráðurinn. Í blaðinu er að finna í 57 blaðsíðna kafla um förðun og fegurð þar sem Harpa Káradóttir fer yfir allt sem við þurfum að vita um strauma og stefnur í förðunarheiminum fyrir sumarið og vorið. Stórglæsilegur kafli þar sem lesendum er leiðbeint í gegnum frumskóg snyrtivaranna á aðgengilegan hátt. Hvernig eigum við til dæmis að nota bleika litinn sem tröllríður nú öllu? Einnig er að finna allt um fylgihluti í blaðinu. Skór, töskur, belti og síðast en ekki síst eyrnalokkar sem eru nú sjóðandi heitur fylgihlutur fyrir sumarið. Við förum yfir hvernig við getum verslað með góðri samvisku og í blaðinu er að finna áhugavert viðtal við hárgreiðslukonuna Fríðu Svölu Aradóttir sem hefur starfað í Hollywood í 40 ár. Þetta er í fyrsta sinn sem hún kemur í viðtal í íslenskum fjölmiðli og þó að þú kannast ekki við nafnið þá er nokkuð víst að þú hefur séð handbragð hennar á hvíta tjaldinu. Það er leitun að flottari ferilskrá!Þetta og margt margt fleira í nýjasta tölublaði Glamour, sem er komið í allar helstu verslanir og til áskrifenda!Tryggðu þér áskrift hér.
Mest lesið Eru Íslendingar með fallegustu húðina? Glamour Hver er þessi Sofia Richie? Glamour Geysir bætir við sig verslun á Skólavörðustíg Glamour Svala stíliserar sig sjálf á Eurovision Glamour Sjáðu stuttmyndina Íslenskar Stelpur eftir Ísold Glamour Föt og fylgihlutir frá Beyonce Glamour Er Bieber byrjaður með dóttur Lionel Richie? Glamour Tísku-icon verða skósveinar Glamour Er útvítt loksins komið til að vera? Glamour Tísku - og kóngafólk sameinast í höllinni Glamour