Gat ekkert hjá Liverpool en gerir nú betur en súperstjörnurnar á Spáni Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 20. mars 2017 13:00 Iago Aspas. Vísir/Samsett/Getty
Hann fékk ekki háa einkunn fyrir frammistöðuna í búningi Liverpool en það eru hinsvegar ekki margir sem á Spáni sem hafa gert betur í vetur. Iago Aspas var áfram á skotskónum með Celta de Vigo í spænsku deildinni í gærkvöldi þegar hann skoraði sigurmarkið í 1-0 útisigri á Deportivo La Coruna. Iago Aspas var leikmaður Liverpool frá 2013 til 2015 en náði ekki að skora eitt einasta mark í ensku úrvalsdeildinni. Eina markið hans fyrir félagið kom í bikarleik á móti Oldham Athletic. Liverpool lánaði hans fyrst til Sevilla og seldi hann síðan til spænska félagsins sumarið eftir. Sevilla seldi hann hinsvegar til Celta de Vigo sama dag og þar hefur kappinn raðað inn mörkum. Iago Aspas skoraði 18 mörk í öllum keppnum í fyrra en hefur síðan gert enn betur í ár. Aspas er kominn með 15 mörk í spænsku deildinni og 21 mark í öllum keppnum. Auk þess að skora 21 mark hefur hann gefið 5 stoðsendingar og er því allt í öllu í sóknarleik Celta de Vigo. Með því að skora fimmtán deildarmörk hefur Aspas þannig skorað fleiri mörk en súperstjörnurnar Antoine Griezmann (14), Karim Benzema (8) og Neymar (8) svo einhverjir séu nefndir.
Spænski boltinn Mest lesið Segir Messi hafa rifist við þjálfarann um taktíkina í úrslitaleiknum Fótbolti Vinicius hefur gjörbreyst eftir lýtaaðgerð Fótbolti Fór á kostum í vítakeppninni og ekki síður í fögnuðinum Íslenski boltinn Yamal sagði frá því hvað hann sagði við Messi Fótbolti Vill afsögn Infantino: „Veit ekki hvort þögnin eða meðsektin er verri“ Fótbolti Orðin hans Gavi gerðu Paredes alveg snaróðan eftir úrslitaleikinn Fótbolti Fjórði ríkasti maður heims orðaður við kaup á hluta í Liverpool Enski boltinn Liðalaus Stones eftirsóttur Fótbolti „Ekki bara handbolti, heldur lífið líka“ Handbolti Skoraði tvennu þrátt fyrir fjólubláan fót: „Hefðum kannski átt að refsa þeim meira“ Fótbolti Fleiri fréttir Vinnandi Víkingar og veikar Valskonur Sir Alex um Keegan: Ég bar gríðarlega virðingu fyrir honum Stoðsendingakóngur HM sakaður um ógreitt meðlag Vill afsögn Infantino: „Veit ekki hvort þögnin eða meðsektin er verri“ Fjórði ríkasti maður heims orðaður við kaup á hluta í Liverpool Fór á kostum í vítakeppninni og ekki síður í fögnuðinum Segir Messi hafa rifist við þjálfarann um taktíkina í úrslitaleiknum Vinicius hefur gjörbreyst eftir lýtaaðgerð Rogers og Palmer sameinaðir hjá Chelsea Anderson sendir Nottingham Forest kveðju Liðalaus Stones eftirsóttur Óskar Smári Haraldsson: „Margt í okkar leik sem var ekki í lagi“ „Bið strákana um að vera djarfir með boltann og sækja“ Skoraði tvennu þrátt fyrir fjólubláan fót: „Hefðum kannski átt að refsa þeim meira“ „Tek fyrri hálfleikinn á mig“ Guðni Eiríksson: „Við erum að njóta“ „Búinn að bíða eftir svona leik“ Uppgjörið: Víkingur - Beer Sheva 2-1 | Nikolaj gerði aftur útslagið Uppgjörið: Valur – Breiðablik 1-7 | Hrafnhildur Ása og Agla María tættu vörn Vals í sig Hearts sá ekki til sólar í Austurríki Aston Villa reynir að fá Garnacho Dönsku meistararnir steinlágu fyrir þeim pólsku Uppgjörið: Fylkir – Afturelding 3-4 (1-1) | Afturelding í úrslit bikarkeppninnar í fyrsta sinn Uppgjörið: FH – Stjarnan 7-3 | FH heldur toppsætinu Leggur flautuna á hilluna eftir tuttugu ára dómaraferil Stoltur af argentíska liðinu Flækingur fótboltans enn á flakki á milli félaga Gleði Spánverja mældist á jarðskjálftamælum Gagnrýnir harðlega „tilefnislausar samsæriskenningar“ Yamal sagði frá því hvað hann sagði við Messi Sjá meira