Þetta er mánuðurinn sem fagurkerar landsins elska enda mikil gróska í íslenskri hönnun og fjölmargir viðburðir tengdir þessari ört stækkandi grein hér landi sem fara fram í þessum mánuði. Þetta er í níunda sinn sem hátíðin er haldin en alls sýna um 400 hönnuðir verk sín.
Reyndar eru viðurðirnir svo margir og fjölbreyttir að Glamour ákvað að taka saman hvaða viðburðum við mælum með að missa ekki af í dag, fimmtudaginn 23.mars.
Nýjar fatalínur, tískusýning, húsgagnahönnun og almenn gleði er að listanum í dag en fjörið er rétt að byrja.

Sundbolirnir eru hannaðir á Íslandi en framleiddir á Ítalíu úr endurunnum efnum. Bæði efni og öll framleiðsla sundbolanna fer fram í sama héraði á Ítalíu með áherslu á lágmarks áhrif á umhverfið. Hönnuðurinn fékk innblástur úr reglulegum sundferðum í sína hverfislaug og heimsóknum í viðarsánuna.
Swimslow leggur áherslu á að njóta þess að vera í núinu og bera virðingu fyrir umhverfinu. Hugmyndafræði Swimslow sprettur út frá baðmenningu Íslendinga og trúir hönnuðurinn ekki á sundfatatímabil – heldur telur það vera allan ársins hring. Sundbolirnir eru klassískir og áreynslulausir í sniðum og faðma kvenlíkamann í öllum sínum myndum án þess að vera of kynþokkafullir eða of sportlegir. Sundbolirnir eru úr sjálfbærum úrvalsefnum og er hugað að hverju smáatriði við hönnun og framleiðslu. Mikil áhersla er lögð á að láta konum líða vel og á gagnsæi yfir allt framleiðsluferlið – eða frá teikningu til lokaafurðar. Sundbolir Swimslow verða fáanlegir eftir á heimasíðu merkisins, swimslow.com.

Það er alltaf gaman að sjá nýjar línur frá íslensku merkjunum - og flott að vörurnar eru fáanlegar í búðinni strax. Hér má lesa nánar um viðburðinn.

Mælum enda alltaf gaman að skoða fallega skó! Hér má sjá meira um viðburðinn.

Gaman að skoða hvað er í vændum hjá þessu skemmtilega merki fyrir smáfólkið. Hér má lesa nánar um viðburðinn.

Við sama tilefni opnar Félag húsgagna- og innréttingahönnuða sýninguna Íslensk húsgögn og hönnun í Flóa og Samtök arktektarstofa opna sýninguna Virðisaukandi arkitektúr.
Sýningarnar standa yfir helgina en það er þess virði að kíkja við og fá innblástur.
Þetta er bara brot af því sem er að gerast í dag á vegum HönnunarMars og hvetjum við alla til að kynna sér einstaklega fjölbreytta dagskrá hér.

Hér er hægt að fræðast meira um viðburðinn.