Juventus vann aftur tíu menn hjá Porto | Sjáðu mörkin Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 14. mars 2017 21:45 Paulo Dybala fagnar marki sínu. Vísir/Getty
Ítalska liðið Juventus tryggði sér sæti í átta liða úrslitum Meistaradeildarinnar í kvöld eftir 1-0 sigur í seinni leiknum á Porto en leikurinn í kvöld fór fram á Ítalíu. Juventus vann þar með 3-0 samanlagt en ítalska liðið gerði bara það sem þurfti í kvöld og ekki mikið meira en það. Porto spilaði manni færri í 112 mínútur í leikjunum tveimur því portúgalska liðið missti mann af velli með rautt spjald í fyrri hálfleik í báðum viðureignunum. Porto var ekki í góðum málum eftir 2-0 tap á heimavelli í fyrri leiknum en veika vonin dó endanlega þegar þeir fengu dæmt á sig vítaspyrnu og misstu auk þess mann af velli rétt fyrir hálfleik. Maxi Pereira varði þá á marklínu með hendi frá Gonzalo Higuain eftir Iker Casillas að hafði rétt áður varið frá Paulo Dybala. Maxi Pereira fékk beint rautt spjald frá dómara leiksins og Paulo Dybala fór á punktinn og kom Juventus í 1-0. Þetta reyndist eina mark leiksins en gestirnir frá Porto fengu nokkur tækifæri til að skora og setja smá spennu í leikinn en tókst ekki. Liðsmenn Juventus fóru því örugglega áfram.
Meistaradeild Evrópu Mest lesið Missti öll tíu Ólympíuverðlaun sín í eldunum Sport Áreittar af hópi manna eftir leikinn í Jeddah Fótbolti Þjálfari Eriku Nóttar meyr eftir að hann sendi hana af stað í ævintýraferð Sport Hákon fiskaði víti og rautt í slökum leik Fótbolti Potter hent úr bikarnum í fyrsta leik Enski boltinn Strákarnir hans Dags fóru illa með mótherja Íslands Handbolti „Liverpool tapar titlinum ef þessi vitleysa heldur áfram“ Enski boltinn Það er ekki flugeldasýning í hverjum leik“ Sport „Hvar í fjáranum er þessi Íslendingur?“ Fótbolti Finnur foxillur: „Bara hrikaleg frammistaða” Körfubolti Fleiri fréttir Hákon fiskaði víti og rautt í slökum leik Potter hent úr bikarnum í fyrsta leik Schick stjarnan í sterkum sigri Júlíus keyptur á meira eina milljón evra Hilmir Rafn gerði fjögurra ára samning við norsku Víkingana Freyr sagður vera með samningstilboð frá Brann Ungir strákar í HK halda styrktarleik fyrir veikan vin sinn Aldís Ylfa orðin landsliðsþjálfari fyrir þrítugsafmælið Áreittar af hópi manna eftir leikinn í Jeddah Í sex leikja bann fyrir að hrækja á mótherja MLS baðst afsökunar á tilkynningu um rangan Japana Isak bestur í desember „Hvar í fjáranum er þessi Íslendingur?“ „Liverpool tapar titlinum ef þessi vitleysa heldur áfram“ Diallo verðlaunaður með nýjum samningi Moyes hefur rætt við Everton Þjálfari sló niður ungan línuvörð en sleppur við fangelsi Everton endaði furðulegan dag á því að fara áfram í bikarnum Fá draumaúrslitaleik á milli Real Madrid og Barcelona Cristiano Ronaldo skoraði á 24. árinu í röð Marta spilar fram á fimmtugsaldurinn Starfsviðtöl að baki og nú þarf að ákveða sig Farnir að orða Mourinho við Everton starfið Everton rak Sean Dyche aðeins nokkrum klukkutímum fyrir leik Liverpool vill fá Kimmich Rooney bað Coleen á bensínstöð Högmo kom ekki í viðtal hjá KSÍ Alex Þór aftur í Stjörnuna „Mikilvægasta ráðning í langan tíma“ Reyna að lokka Arnór aftur til Svíþjóðar Sjá meira