Hegðun stuðningsmanna Barcelona fer í taugarnar á Enrique Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 20. febrúar 2017 17:00 Luis Enrique segir Andre Gomes til. Vísir/Getty
Luis Enrique, stjóri Barcelona, er ekki ánægður með hegðun stuðningsmanna liðsins eins og hún hefur verið að undanförnu. Barcelona hefur veirð í basli að undanförnu. Liðið steinlá fyrir PSG í fyrri leik liðanna í 16-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í síðustu viku og er sem stendur í öðru sæti spænsku deildarinnar, stigi á eftir Real Madrid sem á tvo leiki til góða. Í gær máttu Börsungar þakka fyrir 2-1 sigur á Leganes á heimavelli sínum en Lionel Messi skoraði bæði mörk sinna manna, þar af sigurmarkið úr vítaspyrnu á 90. mínútu. Sjá einnig: Messi skar Börsunga úr snörunni Stuðningsmenn Barcelona virtust einkar óþolinmóðir í leiknum og létu óánægju sína með liðið og einstaka leikmenn í ljós með því að blístra á þá á meðan leiknum stóð. „Ég veit að þetta hefur verið erfitt en leikmenn þurfa ekki blístur, heldur ást,“ sagði Enrique í samtali við spænska fjölmiðla eftir leikinn í gær. Sjá einnig: Einstök liðsuppstilling í 118 ára sögu Barcelona Miðjumaðurinn Andre Gomes hefur sérstaklega orðið fyrir barðinu á stuðningsmönnum Barcelona sem virðast allt annað en sáttir við framlag kappans. „Ég skil ekki af hverju það er verið að blístra á Andre Gomes. Ég skil ekki svona hegðun en mönnum er frjálst að tjá óánægju sína hvernig sem þeir vilja.“
Spænski boltinn Mest lesið „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ Körfubolti „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Íslenski boltinn „Jóla-Paul er á leiðinni og einhver verður rotaður“ Sport „Mourinho er eins og Simpsons-þátturinn“ Sport Uppgjörið: Tindastóll-Álftanes 105-108 | Spennutryllir í Síkinu Körfubolti Ældi blóði, braut rifbein, fór á spítala og svo aftur inn á völlinn Sport Fleiri fréttir Nik Chamberlain rekinn frá Kristianstad „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Grealish í agabanni hjá Everton Emil Atlason á leið í Fram Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ „Enski boltinn er annar heimur“ Nýr heimavöllur í Milan mun koma í stað San Siro „Mér þætti það skrýtið ef að allir kölluðu mig Sir“ FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Cristiano Ronaldo með þrennu Víkingar láta Einar Guðna fara Landsliðsmaður í frí hjá félagi sínu vegna persónulegra ástæðna Hallgrímur kveður KA „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ Viktor Bjarki var í byrjunarliði FCK í öruggum sigri Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Flauta Péturs á hilluna Verða án Sesko fram í janúar Engin uppalin spilaði með Fram „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Knattspyrnuforkólfur segir af sér til að mótmæla stuðningi við Infantino „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Sjá meira