Brynhildur Guðjónsdóttir leikstjóri er að lýsa Mannsröddinni sem frumsýnd verður í Kaldalóni í kvöld af Íslensku óperunni. Tvær listakonur deila einu hlutverki, þær Auður Gunnarsdóttir sópran sem syngur Elle á frönsku og Elva Ósk Ólafsdóttir leikkona sem fer með talað hlutverk Elle og Eva Þyrí Hilmarsdóttir píanóleikari leikur með þeim.
Brynhildur er höfundur leikgerðar. Í henni tvinnar hún saman leikritið Mannsröddina eftir Jean Cocteau og samnefnda óperu Francis Poulenc. Hvernig fór hún að því? „Það var áskorun en þó ekki glíma því það gekk svo svakalega vel,“ svarar hún.
„Ég kaus að gera leikgerðina á staðnum, með flytjendunum því ég varð að fá hreyfingu og hljóð. Stykkið er þannig uppbyggt að það er bara eitt símtal og við heyrum aldrei rödd viðmælandans. Stundum túlkar píanóið rödd hans, stundum tilfinningahita konunnar, stundum truflanir á símalínunni.“

Kristján Þórður Hrafnsson gerði nýja þýðingu textans og Brynhildur kveðst hafa fengið ómetanlega aðstoð Snorra Sigfúsar Birgissonar, tónskálds með píanópartinn. „Hann er svo næmur, hann Snorri, og við skildum hvort annað strax en hann gat ekki tekið að sér túlkunina á sviðinu svo þar tók Eva Þyri við og Irene Kudela kom líka að tónlistarstjórn,“ lýsir hún.
Brynhildur segir hægt að sjá hvort tveggja leikritið og óperuna í heild sinni á YouTube en kveðst ekki hafa fundið neina útgáfu þar sem þau eru splæst saman. „Hugmyndin kom ekki frá mér,“ tekur hún fram. „Auði Gunnarsdóttur langaði að syngja Mannsröddina, enda er þetta djúsí hlutverk fyrir óperusöngkonu á hennar aldri. Hún fór með hugmyndina til Steinunnar Birnu óperustjóra sem langar að Íslenska óperan bjóði upp á fleira en stórar sýningar í Eldborg. Það er frábært og þarna er farið í minni sal og sköpuð meiri nálægð.“
Brynhildur segir Auði hafa haft samband við hana, bæði vegna tónlistar og franskrar tengingar. „Ég hafði kynnt mér Cocteau á sínum tíma, sem hún vissi ekki af, því að Édith Piaf og hann voru nátengd og hann samdi svipað verk fyrir hana. Þar er maður á sviðinu en hann snýr baki í áhorfendur allan tímann og segir ekki orð. Næsta skref hjá okkur Auði var að fara til Steinunnar Birnu og kynna hugmyndina og samtalið hélt áfram. Ég kallaði svo Elvu Ósk til, hún er svo fantagóð leikkona með dýpt.“
Í leikgerðinni kveðst Brynhildur aldrei hafa lent á vegg. „Allt samstarfsfólkið og utanumhaldið í óperunni er búið að vera ljúft og gott,“ segir hún. „Þetta var bara lífrænt ferli.“
Greinin birtist fyrst 9. febrúar 2017