Danir kláruðu riðilinn með fullu húsi stiga Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 20. janúar 2017 21:24 Guðmundur og félagar mæta Ungverjum í 16-liða úrslitunum á sunnudaginn. vísir/getty
Guðmundur Guðmundsson stýrði Dönum til sigurs á Katurum í lokaleik liðsins í D-riðli heimsmeistaramótsins í handbolta í kvöld. Lokatölur 29-32, Danmörku í vil. Danir voru búnir að tryggja sér toppsætið í D-riðli fyrir leikinn og Guðmundur gat því leyft sér að hvíla lykilmenn í kvöld. Niklas Landin, Kasper Söndergaard, Mikkel Hansen og Henrik Toft Hansen spiluðu t.a.m. ekki mínútu í leiknum. Jesper Nöddesbo skoraði átta mörk fyrir danska liðið sem var tveimur mörkum undir í hálfleik, 16-14. Þegar rúmar fimm mínútur voru eftir var staðan jöfn, 27-27, en þá gáfu Danir í og tryggðu sér sigurinn með 5-2 kafla. Niclas Kirkelökke fékk tækifæri í danska liðinu í kvöld, spilaði allan leikinn og skilaði sjö mörkum úr jafnmörgum skotum. Michael Damgaard minnti einnig á sig með sex mörkum. Danir mæta Ungverjum í 16-liða úrslitunum í Albertville á sunnudaginn. Í hinum leik kvöldsins vann Hvíta-Rússland tveggja marka sigur á Ungverjalandi, 27-25. Með sigrinum tryggðu Hvít-Rússar sér 3. sætið í C-riðli og leik gegn Svíum í 16-liða úrslitunum. Barys Pukhouski og Ivan Brouka skoruðu sex mörk hvor fyrir Hvíta-Rússland. Adam Juhasz og Gabor Csaszar gerðu báðir sjö mörk fyrir Ungverjaland sem mætir Danmörku í 16-liða úrslitunum eins og áður sagði.
HM 2017 í Frakklandi Mest lesið Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Fótbolti Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti Lét lífið í New York maraþoninu: „Þetta er óskiljanlegt“ Sport Ronaldo var skilinn eftir heima Fótbolti Handtóku fjórtán ára strák eftir uppátæki hans á fótboltaleik Sport Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Fótbolti Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Fleiri fréttir Sigurganga Hauka heldur áfram Hvert sæti skipað í Laugardalshöll Teitur kallaður inn í landsliðið vegna meiðsla Einmana á botninum í hléinu Fram steinlá gegn nýliðunum og FH vann Þór Atli Steinn kláraði Stjörnuna Íslendingarnir með sextíu prósent markanna Yfirburðir Hauka sem tapa ekki leik „Sóknarleikurinn vel smurður“ Uppgjörið: Valur - Afturelding 40-37 | Valur gerði Aftureldingu grikk að Hlíðarenda Fimmti sigur Eyjakvenna í röð Fjórði sigur Valskvenna í röð Fái að fresta prófum til að spila fyrir Íslands hönd Arnar með fleiri á tánum: „Hefðum alveg getað verið heppnari“ Samningur Arnars að renna út: „Vonandi ekki síðasta mótið“ Hópurinn sem fer til Rúmeníu á EM Svona var EM-fundur Arnars „Förum að gera klaufamistök og klikka á dauðafærum“ „Stemning í liðinu og traust“ Uppgjörið: Fram - Haukar 26-29 | Haukar enn með fullt hús Magnús Dagur tryggði fyrsta útisigur Eyjamanna síðan í september Ólíkt gengi hjá Íslendingaliðum í sama riðli í Meistaradeildinni Þessar 35 mega spila á EM: Átta hafa ekki spilað landsleik Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum KA-menn burstuðu FH-inga í Krikanum Elín Klara öflug í stórsigri Sävehof HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM „Mér finnst þessi ruðningslína leiðinleg“ „Sigurinn nærir“ Sjá meira