Byrjað verður að spila fyrr í dag en áætlað var vegna slæmrar veðurspár á Pure Silk-mótinu á Bahamaeyjum. Þetta er fyrsta LPGA-mót ársins.
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir er að keppa á sínu fyrsta LPGA-móti og er sem stendur í 69.-76. sæti á þremur höggum undir pari. Hún náði sér ekki á strik í gær og lék þá á 77 höggum. Ólafía hefur leik á 10. teig í dag og á rástíma klukkan 15.01.
Sjá einnig: Ólafía Þórunn í 69. sæti eftir erfiðan þriðja hring
Vegna þessa verður útsendingartíma frá mótinu flýtt. Sýnt verður beint frá mótinu á Stöð 2 Sport 4 og stendur útsending yfir frá kl. 18.15 til 20.15. Útsendingin verður aðgengileg fyrir áskrifendur Golfstöðvarinnar.
Stacy Lewis og Lexi Thompson eru í forystu fyrir lokakeppnisdaginn en þær hafa spilað fyrstu þrjá dagana á 23 höggum undir pari samtals. Gerina Piller (-22) og Brittany Linicome (-21) koma næstar á eftir og má búast við að þær berjist um sigurinn í dag.
Fylgst verður með gangi mála í beinni textalýsingu á Vísi.
