Ólafía Þórunn fékk rúmlega 320 þúsund krónur í frumrauninni

Sjá einnig:Ólafía Þórunn lék lokahringinn á tveimur höggum undir pari
Ólafía fékk keppnisrétt strax á fyrsta móti eftir frábæra frammistöðu á úrtökumótinu í desember en hún komst í gegnum niðurskurðinn í fyrstu tilraun.
Verðlaunaféð á mótinu taldi alls 1,4 milljón dollara og fengu allir kylfingarnir sem komust í gegnum niðurskurðinn sinn hluta af verðlaunafé mótsins.
Sjá einnig:Ólafía Þórunn: Lærði helling af þessu móti | Var með lag Jóns Jónssonar á heilanum í allan dag
Brittany Lincicome stóð uppi sem sigurvegari á 26. höggum undir pari eftir bráðabana gegn Lexi Thompson en Brittany fékk 210.000 dollara fyrir sigurinn, rúmlega 24 milljónir íslenskra króna.
Ólafía fékk eins og áður segir 2783 dollara fyrir árangur sinn á mótinu eða rúmlega 320 þúsund íslenskar krónur strax á fyrsta móti en það gæti reynst henni dýrmætt að lokum.
Sjá einnig:Fjórði hringurinn var mun líkari fyrstu tveimur hjá Ólafíu Þórunni
Peningamálin skipta þó miklu máli þegar uppi er staðið þar sem efstu 125 kylfingarnir á peningalista LPGA-mótaraðarinnar í lok árs endurnýja sjálfkrafa keppnisrétt sinn á mótaröðinni.
Tengdar fréttir

Fjórði hringurinn var mun líkari fyrstu tveimur hjá Ólafíu Þórunni
Ólafía Þórunn náði sér aftur á strik og lék á tveimur höggum undir pari á lokahring Pure Silk Championship sem er hluti af LPGA-mótaröðinni en Ólafía lék á fimm höggum undir pari í frumraun sinni í þessari sterkustu atvinnumannamótaröð heims.

Nýtt vallarmet sett á Bahamaeyjum í gær
Ólafía er í tuttugasta sæti fyrir þriðja hringinn á Pure Silk Bahama Classic-mótinu á LPGA-mótaröðinni en efstu kylfingarnir hafa leikið hreint út sagt ótrúlegt golf á fyrstu tveimur dögunum.

Ólafía Þórunn örugg með verðlaunafé
Fær ekki minna en 250 þúsund krónur en fær vel yfir milljón með sama áframhaldi.

Ólafía Þórunn: Lærði helling af þessu móti | Var með lag Jóns Jónssonar á heilanum í allan dag
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir ræddi við Sigurð Elvar Þórólfsson, fréttaritara golf.is eftir lokahringinn á Pure Silk Championship á Bahamaeyjum rétt í þessu en Ólafía lenti í 69-72. sæti í frumraun sinni á þessari sterkustu atvinnumannamótaröð í heimi.

Ólafía Þórunn lék lokahringinn á tveimur höggum undir pari
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir lék lokahringinn á Pure Silk Championship-mótinu á tveimur höggum undir pari en hún hafnaði í 69-72. sæti í frumraun sinni í sterkustu atvinnumannamótaröð kvenna í heiminum.