Tveir kveðja en einn stimplar sig inn Tómas Þór Þórðarson skrifar 13. janúar 2017 06:30 vísir/getty
Fjórir íslenskir þjálfarar stýra liðum á HM í handbolta sem hófst í Frakklandi í gær. Tveir þeirra þekkja vel til á stórmótum sem þjálfarar og hafa unnið slík mót. Það eru auðvitað Evrópumeistarinn Dagur Sigurðsson, þjálfari Evrópumeistara Þýskalands, og Guðmundur Guðmundsson, þjálfari Ólympíumeistara Dana. Tveir Íslendingar þreyta frumraun sína í Frakklandi. Annar er Geir Sveinsson sem þjálfar íslenska liðið en hinn er Kristján Andrésson, þjálfari Svíþjóðar. Allir nema Geir voru saman á stórmóti árið 2004 þegar Ísland tók þátt á Ólympíuleikunum í Aþenu. Dagur og Kristján voru leikmenn, Guðmundur þjálfari en skórnir voru komnir upp í hillu hjá fyrrverandi landsliðsfyrirliðanum Geir Sveinssyni. Þrátt fyrir frábæran árangur á síðasta ári verður HM í Frakklandi kveðjumót bæði Dags og Guðmundar. Dagur hefur ákveðið að taka við japanska landsliðinu og búa þar til samkeppnishæft lið fyrir Ólympíuleikana í Tókýó árið 2020 en Guðmundur stóð í ströngu í kringum Ólympíugullið og ákvað að segja starfi sínu lausu. Hann verður ekki í miklum vandræðum með að finna sér aðra vinnu. Þriðji Íslendingurinn sem þjálfar annað landslið en Ísland á HM, Kristján Andrésson, er á sínu fyrsta stórmóti með þessa miklu handboltaþjóð. Kristján er fyrsti Íslendingurinn sem þjálfar Svía en hann var þjálfari Guif frá Eskilstuna í níu ár frá 2007-2016. Hann kom liðinu þrisvar sinnum í úrslitaleik sænsku úrvalsdeildarinnar en ber nú ábyrgð á því að lyfta fjórföldum heimsmeisturum Svía aftur upp í hæstu hæðir. Ísland á næstflesta þjálfara á mótinu á eftir Spánverjum. Sex Spánverjar þjálfa fimm lið en Katar eru með tvo slíka að stýra silfurliði síðasta heimsmeistaramóts.Dagur kveður Þjóðverja eftir HM.vísir/gettyDagur Sigurðsson, Þýskalandi 43 ára Tók við þýska landsliðinu í ágúst 2014 Fjórða stórmótið með Þjóðverja 7. sæti á HM 2016 1. sæti á EM 2016 3. sæti á ÓL 2016 Dagur Sigurðsson varð að þjóðhetju í Þýskalandi á síðasta ári þegar hann gerði ungt og meiðslum hrjáð lið Þjóðverja að Evrópumeisturum. Hann bætti svo um betur og skilaði bronsi í hús á Ólympíuleikunum. Dagur hefur oft tekið áhugaverðar ákvarðanir á sínum ferli og eina slíka tók hann undir lok síðasta árs þegar kom í ljós að hann myndi hætta með Þýskaland eftir HM. Hans næsta verkefni er að þjálfa Japan. Hann er á sínu fimmta stórmóti sem þjálfari en áður stýrði hann Austurríki á EM þar í landi árið 2010. Á stórmótunum hafa Þjóðverjar unnið 19 af 25 leikjum (5 tapleikir) síðan hann tók við. Þetta gerir 78 prósent sigurhlutfall. Hvað segir Gaupi um Dag og Þýskaland? „Þjóðverjar eru eitt þriggja liða ásamt Dönum og Frökkum sem koma til greina sem sigurvegarar. Þessi þrjú lið spila besta varnarleikinn og eru með bestu markverðina. Það veikir þýska liðið að Steffen Weinhold er ekki með. Það er áfall og veikir möguleika þeirra. Þýska liðið kom á óvart á EM í fyrra en er núna þekkt stærð og mótherjar þeirra vita frekar að hverju þeir ganga.“Kristján er á leið á sitt fyrsta stórmót með sænska liðið.mynd/guifKristján Andrésson, Svíþjóð 35 ára Tók við sænska landsliðinu í september 2016 Fyrsta stórmótið sem þjálfari Svíar voru í 11. sæti á síðasta stórmóti sínu (ÓL 2016) Kristján var leikmaður líkt og hinir þrír íslensku þjálfararnir en náði aldrei jafn langt á þeim ferli. Hann þurfti að leggja skóna á hilluna fyrir þrítugt vegna þrálátra hnémeiðsla en hefur í staðinn gert það gott sem þjálfari í Svíþjóð. Hann er fæddur í Svíþjóð en er með íslenskan ríkisborgararétt. Bróðir hans, Haukur Andrésson, á einnig leiki fyrir íslenska landsliðið en hann spilaði lengi undir stjórn bróður síns hjá Guif. Hann hefur stýrt Svíum fimm sinnum, þar af í tveimur mótsleikjum, og unnið þá alla. Hvað segir Gaupi um Kristján og Svía? „Svíar eru í endurbyggingarfasa og hafa misst mikið af góðum leikmönnum á síðustu mánuðum. Svíar hafa samt engan skilning á uppbyggingu og gera kröfur um að komast að minnsta kosti í átta liða úrslit. Undanúrslit væru bónus. Ég er spenntur fyrir því að sjá Svía undir stjórn Kristjáns því ég held að hann sé betri þjálfari en sumir halda. Pressan á honum verður ekkert minni en hjá Guðmundi þegar hann tók við Dönum. Þó hann sé fæddur í Svíþjóð er hann Íslendingur og því er það mikið afrek og meðmæli að hann hafi yfirhöfuð fengið starfið sem landsliðsþjálfari Svíþjóðar.“Guðmundur Guðmundsson, þjálfari danska landsliðsins.vísir/gettyGuðmundur Guðmundsson, Danmörku 56 ára Tók við danska landsliðinu í júlí 2014 Fjórða stórmótið með Dani 5. sæti á HM 2015 6. sæti á EM 2016 1. sæti á ÓL 2016 Reynsluboltinn Guðmundur Guðmundsson er á sínu þrettánda stórmóti sem þjálfari en hann stýrði Íslandi níu sinnum og skilaði tvisvar sinnum verðlaunum. Hann byrjaði ekki nógu vel með Dani þegar kom að því að safna verðlaunum en hann datt úr leik í átta liða úrslitum á HM í Katar og á EM í Póllandi. Hann bætti upp fyrir allt saman með því að vinna Ólympíuleikana í erfiðu og ósanngjörnu starfsumhverfi á síðasta ári. Danir hafa aðeins tapað fimm keppnisleikjum af 37 undir stjórn Guðmundar og á stórmótum hafa Danir unnið 16 af 24 leikjum (5 tapleikir) síðan hann tók við. Þetta gerir 73 prósent sigurhlutfall. Hvað segir Gaupi um Guðmund og Dani? „Danir eru með mjög heilsteypt lið sem getur unnið mótið. Það veikir liðið hrikalega mikið að Mads Christiansen gaf ekki kost á sér. Guðmundur gerði vel á síðasta ári með því að velja Morten Olsen í liðið fram yfir Rasmus Lauge. Olsen var lykilmaður í því að Danir unnu ÓL. Hann er miðjumaður úr smiðju Guðmundar. Þarna tók Gummi einu sinni sem oftar stóra en rétta ákvörðun.“
HM 2017 í Frakklandi Mest lesið „Endanlegt ippon fyrir Slot“ Enski boltinn Komst ekki í landsleik af því að konan treysti sér ekki til að halda afmæli ein Fótbolti Haaland tryggði City sigur í stórleiknum gegn Real Madrid Fótbolti Viktor Bjarki byrjaði í dramatískum sigri í Meistaradeildinni Fótbolti Aðeins of mikið af því góða fyrir Gumma Ben og félaga Fótbolti Fagmannlega að verki staðið hjá Arsenal í Belgíu Fótbolti Slot hugsi: Spyr hvort Salah telji sig hafa gert mistök Enski boltinn Ofsótt af milljarðamæringi Enski boltinn Þrír sem Jökull þolir ekki: „Hann er algjört gerpi“ Enski boltinn Dagur til Kanada „aðeins eldri með barn, hund og vini fyrir lífstíð“ Fótbolti Fleiri fréttir Orri með þrjú mörk er Sporting sendi skýr skilaboð Danir úr leik á HM Taphrina HK á enda eftir dramatískar lokasekúndur Tíu íslensk mörk er Magdeburg vann Melsungen Haukar jafna Val að stigum á toppi deildarinnar FH sótti sigur í greipar ÍBV og Valur vann spennutrylli Benedikt með fjögur mörk í öruggum sigri Holland áfram í undanúrslit og mætir Noregi Norska landsliðið flaug áfram í undanúrslit Stórleikur Birgis Steins í sex marka sigri Fjögur mörk Elvars dugðu skammt í þungu tapi Þýska stálið flaug áfram í undanúrslit Toppkonur Íslands á HM í handbolta 2025 Kom færandi hendi eftir að hafa skotið ljósmyndarann niður Stjörnur Kolstad þurfa að taka á sig launalækkun Átta liða úrslitin á HM klár Ótrúlegir yfirburðir Noregs og Danir enduðu líka á toppnum Ýmir lenti í íslensku hakkavélinni og enn bíður Blær Skýrsla Ágústs: Ekki lengur reynslulausar „Þessi hópur getur orðið mjög góður en hann þarf tíma til að læra“ „Æðisleg tilfinning að sjá boltann í markinu“ „Sérstaklega sætt að vinna Færeyjar“ Færeyjar - Ísland 30-33 | Kveðja HM með góðum sigri 13 mörk Andra dugðu skammt gegn frábærum Hauki Svartfjallaland fylgir frábærum Þjóðverjum áfram Eiður í stuði í stórsigri Fæddi barn í september og gæti mætt Íslandi á HM í kvöld „Ég hætti að stækka þegar ég var þrettán ára“ Kærkomin pizza eftir endalaust hakk og spagettí á hótelinu „Bara súrrealískt og eitthvað sem ég mun aldrei gleyma“ Sjá meira