Fyrst er vert að nefna fartölvuna Predator 21 X frá Acer, sem kostar um milljón krónur, eða 8.999 dali. Í henni eru tvö GTX 1080 skjákort, fimm viftur og hún er með 21 tommu sveigðan skjá. Tölvan vegur heil 8,8 kíló.
Þá kynnti Dell tölvuna Inspiron 15 7000 sem er um níu hundruð þúsund krónum ódýrari.
Fyrirtækið Kingston kynnti DataTraveler Ultimate GT minnislyklana sem gera verið allt að 2TB að stærð. Það gerir þá að stærstu minnislyklum sem hægt er að fá samkvæmt CNET, þar sem hægt er að fylgjast með nýjustu vendingum á ráðstefnunni. Það gæti þó breyst á næstu dögum. Verð liggur ekki fyrir en þeir fara í sölu í næsta mánuði.
Vélmennið Kuri lét einnig sjá sig á CES. Það er framleitt af fyrirtækinu Mayfield Robotics og tengist á netið og tengist öðrum tækjum með Bluetooth. Þá er innbyggð myndavél í því og getur það vaktað heimilið og stýrt heimilistækjum með raddstýringum. Þá segja forsvarsmenn fyrirtækisins að vélmennið muni jafnvel geta rekið gæludýr niður úr sófum og öðrum stöðum sem þau eiga ekki að vera þegar eigendurnir eru ekki heima.
Stærsti kostur Kuri er þó án efa sá að vélmennið mun líklega ekki reyna að taka yfir heiminn.