Elfar Freyr lánaður til Horsens Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 5. janúar 2017 09:10 Elfar Freyr er á leið aftur í atvinnumennsku. vísir/stefán
Elfar Freyr Helgason hefur skrifað undir nýjan þriggja ára samning við Breiðablik. Við sama tækifæri gengu Breiðablik og Horsens frá samkomulagi um að Elfar færi til danska úrvalsdeildarliðsins á láni. Elfar verður því samherji Kjartans Henrys Finnbogasonar sem hefur leikið með Horsens frá miðju sumri 2014. Elfar heldur til Danmerkur um næstu helgi og mun spila með Horsens næstu mánuði. Danska félagið hefur svo forkaupsrétt á Elfari þannig að svo gæti farið að hann spilaði með Horsens næstu árin. Elfar, sem er 27 ára miðvörður, hefur leikið með Breiðabliki allan sinn feril ef frá eru talin þrjú ár sem hann var í atvinnumennsku. Hann lék með AEK í Aþenu 2011-12, fór þaðan til Stabæk í Noregi og svo til Randers í Danmörku. Elfar sneri aftur til Breiðabliks á miðju sumri 2013 og hefur leikið með Kópavogsliðinu síðan þá. Elfar hefur alls leikið 115 leiki með Breiðabliki í efstu deild og skorað þrjú mörk. Hann varð bikarmeistari með Blikum 2009 og Íslandsmeistari ári seinna. Horsens situr í 7. sæti dönsku deildarinnar. Keppni í dönsku deildinni hefst aftur um miðjan febrúar.
Fótbolti á Norðurlöndum Mest lesið Strákarnir okkar spila HM þar sem Íslendingar eru dáðir og dýrkaðir Handbolti Nýr kynjakvóti FIFA: Öll kvennalandslið verða að hafa kvenþjálfara Fótbolti „Höfum gleymt ástæðunni fyrir því að VAR var tekið upp“ Enski boltinn Reglur sem landsbyggðarlið vildu og Þór þarf að greiða hundruð þúsunda Körfubolti Rafmagnað klúður í brasilíska fótboltanum Fótbolti Mögulegt að sjö efstu komist í Meistaradeild Evrópu Fótbolti „Vona bara að landsliðsþjálfarinn hafi verið að horfa“ Körfubolti Rekinn úr íranska landsliðinu Fótbolti Mainoo og Maguire snúa aftur en enginn Alexander-Arnold Fótbolti 37 ára Gylfi stefnir á EM 2028 Íslenski boltinn Fleiri fréttir 37 ára Gylfi stefnir á EM 2028 Sögulegur samningur Víkinga Þjálfari HK-kvenna braut siðareglur „Hausinn minn ekki víraður eins og hinir“ Heimir Guðjóns er kominn með Fylkismenn alla leið í úrslitaleikinn Kemur alltaf í Þór Blikakonur með þriðja stórsigurinn í röð Sjáðu mörkin er KR valtaði yfir Stjörnuna og flaug áfram í úrslitaleikinn Fimmtán ára skoraði tvö þegar KR fór í úrslit Íslenskukunnáttan takmarkast við „kjúklingawingers“ Tilfinningarík kveðjustund eftir þriggja ára baráttu David James þjálfar markverði Vals Sektir fyrir klúður í skýrslu og brotthvarf í hálfleik Föstudagsfjör hjá KA: Svíi mættur í kjölfar Danijels Danijel Djuric gerir þriggja ára samning við KA Valsmenn hafi sýnt vanvirðingu: „Gamla góða kjaftæðið“ „Gátum ekki látið hann stjórna því“ Baldé snýr aftur til bikarmeistaranna Fylkir á barmi undanúrslita eftir sigur á ÍBV Sjáðu fimmu Atla Sigurjóns á móti Val í gær Fleury fór á kostum gegn FH Atli Sigurjóns skoraði fimm mörk og fór illa með Val Víkingurinn fljótur að láta til sín taka í Keflavík Meistararnir skoruðu sjö mörk gegn Víkingi Mættur til Skagamanna á Tenerife og gæti spilað gegn KR um helgina Fram fær hávaxna Hvergerðinginn Þróttarar fyrstir til að vinna Fylki og enn barist um efsta sætið Kani í mark Víkinga „Talaði við nokkur lið en á endanum var Víkingur mest heillandi“ Ejub látinn fara af fjárhagslegum ástæðum Sjá meira