Breski sjónvarpskokkurinn Jamie Oliver hefur tilkynnt að hann muni loka sex af veitingastöðum sínum í Bretlandi vegna slæms gengis og óvissu vegna væntanlegrar útgöngu Bretlands úr Evrópusambandinu. Oliver stefnir á að opna stað á Íslandi innan skamms.
Veitingastaðirnir sem um ræðir bera nafnið Jamie's Italian og eru samskonar þeim veitingastað sem Oliver stefnir á að opna hér á landi í vor líkt og Vísir greindi frá á síðasta ári. Oliver rekir 42 Jamie's Italian staði á Bretlandi og ætlar Oliver að einbeita sér að rekstri þeirra auk þess sem hann stefnir að því að opna 22 Jamie's Italian staði um heim allan, þar á meðal á Íslandi.
Oliver hefur hagnast vel á rekstri veitingastaða sinna, framleiðslu sjónvarpsþátta og tengdum rekstri en samkvæmt síðasta ársreikningi námu tekjur fyrirtækis hans um 158 milljónum punda eða um 22 milljörðum íslenskra króna.
Gert er ráð fyrir því að veitingastaður Oliver hér á landi muni opna á Hótel Borg í Reykjavík í apríl eða maí á árinu gangi framkvæmdir vel.

