Fram í úrslit þrátt fyrir slæma byrjun | Myndir Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 27. desember 2016 17:29 Ragnheiður Júlíusdóttir skoraði sex mörk fyrir Fram. vísir/stefán
Fram er komið úrslit Flugfélags Íslands mótsins eftir þriggja marka sigur á Val, 26-23, í fyrri undanúrslitaleiknum í dag.Stefán Karlsson, ljósmyndari Fréttablaðsins og Vísis, var í Hertz-höllinni í dag og tók meðfylgjandi myndir. Eftir 11 mínútur benti fátt til þess að Fram væri að fara í úrslitaleikinn en þá var staðan 2-7 fyrir Val. Fram svaraði með þremur mörkum og þegar liðin gengu til búningsherbergja var munurinn aðeins eitt mark, 11-12. Í seinni hálfleiknum var Fram svo mun sterkari aðilinn og hafði góð tök á leiknum. Margir lögðu hönd á plóg hjá Fram en alls komust níu leikmenn liðsins á blað í leiknum. Á meðan skoruðu Diana Satkauskaite og Morgan Marie Þorkelsdóttir 16 af 23 mörkum Vals. Á endanum munaði þremur mörkum á liðunum, 26-23. Ragnheiður Júlíusdóttir var markahæst í liði Fram með sex mörk en Satkauskaite skoraði 10 mörk fyrir Val. Það kemur í ljós í kvöld hvort Fram mætir Stjörnunni eða Haukum í úrslitaleiknum á morgun.Mörk Fram: Ragnheiður Júlíusdóttir 6/2, Steinunn Björnsdóttir 5, Hildur Þorgeirsdóttir 5, Sigurbjörg Jóhannsdóttir 3, Guðrún Þóra Hálfdánardóttir 2, Hulda Dagsdóttir 2, Rebekka Rut Skúladóttir 1, Elísabet Gunnarsdóttir 1/1, Marthe Sördal 1.Mörk Vals: Diana Satkauskaite 10/2, Morgan Marie Þorkelsdóttir 6/1, Kristine Häheime Vike 3, Birta Fönn Sveinsdóttir 2, Gerður Arinbjarnar 2.
Olís-deild kvenna Mest lesið Aðeins sautján konur með betri tíma en Elísa í ógnarsterku utanvegahlaupi Sport Emery segir brjálæði hversu mikið Villa fékk fyrir Watkins og Konsa Enski boltinn Ver umdeilda veggmynd sína af Ronnie O'Sullivan Sport Linda Líf gengur til liðs við nýliðana í enska boltanum Sport Sjáðu óverjandi mark Hákons gegn PSG Fótbolti Bjarni ræðir brottförina frá Val: „Erfitt að ná alvöru stöðugleika“ Íslenski boltinn Hákon skoraði glæsimark gegn PSG Fótbolti Valsmenn slógu í klárinn undir lokin Handbolti Dagskráin í dag: Enski og Bestu deildirnar í aðalhlutverki Sport Systurnar báðar með tvö mörk á Ásvöllum og KR upp í annað sætið Íslenski boltinn Fleiri fréttir Valsmenn slógu í klárinn undir lokin Arnar Freyr fagnaði sigri í frumrauninni með Flensburg en naumt tap hjá Arnóri Jóhanna Margrét skoraði fimmtán þegar Haukar unnu Meistarakeppnina Eyjakonur og Haukar meistarar samkvæmt spánni Gísli tekur við og stýrir Víkingi í næstefstu deild Reynir Þór með fína frammistöðu í tapi Víkingar gefa frá sér sætið í Olís-deildinni Sá rautt eftir nokkrar sekúndur: „Maður lætur muna eftir sér“ Óvænt hætt sem þjálfari af persónulegum ástæðum Ólafur fékk rautt spjald eftir sjö sekúndur í endurkomunni Ótrúlega ósáttur við Val: „Hafa skilið mann eftir einan í myrkrinu“ Guðjón Valur framlengir við Gummersbach Heiðursmannasamkomulag var svikið: „Kom okkur á óvart“ Einn af strákunum okkar biðlar til Trump um samning Áfall í undirbúningi Íslands fyrir HM Gísli Þorgeir með níu mörk í níu skotum þegar Magdeburg vann Ofurbikarinn Díana varð meistari meistaranna eftir vítakeppni Fjórtán ára undrabarn spilar með Þorsteini Leó Landsliðskona í Val Breki nýtir sér ráð Viktors og er klár í harðan slag í Portúgal Mun Guðmundur reisa Holland við? Rekinn eftir óásættanleg samskipti við yngri leikmenn Elvar fer frá Magdeburg til Löwen: „Frábær bónus að spila með Hauki frænda“ Glænýtt gólf fyrir frumraun Arons en stúkurnar bíða Daníel með slitna hásin Kallar eftir naflaskoðun í norskum handbolta: „Bilið í fremstu þjóðir hefur aukist“ Rifu sig upp eftir vonbrigðin í gær og unnu Frakka eftir rosa endasprett Raunveruleiki sem þú getur ekki forðast Uppgjörið: Ísland - Þýskaland 31-33 | Þjóðverjar áttu alltaf svar Fylgist stoltur með litla bróður á EM: „Verið draumur hans í mjög langan tíma“ Sjá meira