Breskir fjölmiðlar hafa verið að velta sér upp úr þessu í langan tíma, hvort söngkonan sé ólétt, en það fór ekki á milli mála í gær þegar parið mætti saman á góðgerðakvöld í London. Cole var í þröngum prjónakjól frá Alexander Wang og brostu þau bæði út að eyrum.
Það verður nóg um að vera hjá parinu á næstunni en þau staðfestu samband sitt í febrúar á þessu ári.
