Samantha Jones fær mögulega sinn eigin þátt Ritstjórn skrifar 16. nóvember 2016 15:00 Kim Cattrall hefur leikið Samantha Jones í öllum þáttaröðunum og myndunum tveimur. Mynd/Getty
Það eru ávallt að birtast fréttir um mögulega nýja seríu af hinum ástsælu þáttum Sex and the City. Þættirnir gerðu allt vitlaust um aldamótin og voru alls gerðar sex þáttaraðir og tvær kvikmyndir. Ein vinsælasta persónan í þáttunum, Samantha Jones sem leikin er af Kim Cattrall, mun mögulega fá sinn eigin sjónvarpsþátt á HBO. Sögusagnir hafa í þónokkurn tíma verið að velta upp þeirri spurningu en þegar spjallþáttastjórnandinn Wendy Williams fjallaði um málið í þættinum sínum svaraði Kim Cattrall henni á Twitter og virtist staðfesta það að þættirnir gætu verið möguleiki. Það yrðu gleðifréttir fyrir alla SATC aðdáendur og þá sérstaklega dygga stuðningsmenn Samantha Jones sem er afar skrautlegur en sterkur karakter sem eflaust margir tengja við. Hér fyrir neðan má sjá það sem Cattrall svaraði Wendy Williams.I'm so unbelievably flattered & moved @WendyWilliams Can't WAIT 2 get back 2 the serious business of making u all laugh! Fingers x'd. https://t.co/whYYYzJOoV— Kim Cattrall (@KimCattrall) November 12, 2016
Mest lesið Meðvituð tískudrottning Glamour Tulipop bestu nýliðarnir Glamour Frönsk fegurð á fremsta bekk Glamour Balmain fyrir börnin Glamour iglo+indi gerir peysu til styrktar UN Women Glamour Mary J Blige brýtur í blað í sögu Óskarsins Glamour Tískufyrirmyndin David Bowie Glamour Vogue tekur myndir á Seyðisfirði Glamour Selena Gomez frumsýnir nýja klippingu Glamour Flatbotna skór og grófir saumar Glamour