Eftir að hafa spilað líklegast alla leikina og þann síðasta, Beyond Earth, alveg óeðlilega mikið neyddi Civ 6 mig til þess að kynna mér margar hliðar leiksins upp á nýtt. Sid Meier hefur ákvað greinilega að hrista verulega upp í hlutunum og það kemur vel út.
Eins og áður snýst Civ út á að byggja upp siðmenningu sem stenst tímans tönn. Byggja heri, stórkostlegar byggingar og menningu og sigra andstæðinga sína, hvort sem það er með hernaði, trú, vísindum eða einhverju öðru.
Svo við komum aftur að því sem búið er að breyta í leiknum, þá hefur tækniþróun siðmenninga í Civ 6 verið skipt upp í tvo flokka. Annar snýr að hreinum vísindum og þar er tækni þróuð með því að byggja rannsóknarstöðvar og safna „research“. Hinn flokkurinn snýr að menningarlegum atriðum sem eru uppgötvuð með því að byggja leikhús og menningarhverfi. Þá má stytta tímann sem það tekur að rannska hverja tækni fyrir sig með því að uppfylla ákveðin skilyrði sem fylgir hverri tækni.
Önnur breyting er að spilarar þurfa að skipuleggja borgir sínar mun betur en áður. Í gömlu leikinum tóku borgir bara einn reit en svo er ekki lengur. Til að byggja þarf til dæmis fyrst að byggja fjármálahverfi, sem tekur heilan reit út af fyrir sig. Undur taka einnig reiti og allt sem er byggt fær ákveðna bónusa eftir því hvar það er byggt. Þá er eingöngu hægt að byggja ákveðin undur á ákveðnum tegundum reita. Allt felur þetta í sér að spilarar þurfa að hugsa betur út í hvar þeir byggja borgir og hvernig.
Þá hefur verkaflokkum og hvernig þeir virka verið breytt nokkuð. Nú byggja þeir hluti eins og bændabýli og námur samstundis, en þeir hafa einungis takmarkaðan fjölda aðgerða áður en þeir hverfa. Þá hefur vegakerfi leikjanna verið breytt verulega, þar sem verkaflokkar byggja þá ekki lengur. Þess í stað eru þeir byggðir með því að senda verslunarmenn á milli borga.

Nú geta spilarar líka loksins skammað tölvugerða andstæðinga sína fyrir það sem þeir hafa verið að skamma okkur fyrir um árabil. „Ekki byggja borg svona nærri mér“, „Færðu þessa hermenn frá landamærum mínum“ og svo framvegis. Þetta virkar þó ekkert frábærlega. Allavega í samskiptum mínum við Pétur hinn mikla í nokkrum af þeim leikjum sem ég hef spilað, þar sem hann hefur verið nágranni minn. Hann er alger drullusokkur og lygari.
Það líður yfirleitt ekki langur tími þar til Pétur er farinn að senda fjöldan allan af trúboðum til borganna minna sem laða þegna mína frá minni frábæru trú, sem ég kýs að kalla Sammism. Þannig tapa ég mikilvægum bónusum á framleiðslu og fólksfjölgun sem fylgir Sammism. Lof sé Samma!
Þá sendi ég Pétri línu og bið hann vinsamlegast um að hætta þessu. Svarið hefur hingað til alltaf verið eins: „Þú ert nú meira fíflið, en ég get svo sem orðið við þessari beiðni,“ segir Pétur (Mjög lauslega þýtt).
Nokkrum umferðum síðar eru trúboðarnir mættir aftur og Pétur brýtur loforð sitt.
Þá fordæmi ég Pétur fyrir svikin og bíð í fimm umferðir áður en ég lýsi yfir stríði við Rússland. Með því get ég minnkað þá neikvæðni sem aðrir leiðtogar sýna mér fyrir að lýsa yfir stríði. Með því að fara í réttmætt stríð, sem er skemmtileg tilbreytni.

Eins og með aðra Civilization leiki verður þessi líka frekar pússaður til og breytt með útgáfu aukapakka seinna meir. Þeir hafa iðulega gert mjög mikið fyrir fyrri leikina. Ég er nokkuð viss um að Civ 6 muni reynast mikill tímaþjófur á komandi mánuðum og árum. Hann virkar betur útfærður en eldri leikir seríunnar og eins og áður segir, þá koma nýjar breytingar mjög vel út.