Þegar Döðlur fengu boð um að hanna innviði nýs hótels í gamla JL húsinu fyrir tveimur árum urðu Daníel Freyr Atlason og samstarfsfélagi hans, Hörður Kristbjörnsson, mjög spenntir.
„Þetta er hús sem hefur mjög sérstakan sess í hugum margra. Þarna fóru foreldrar manns í sunnudagsbíltúrinn til að sýna manni húsið sem beygist,“ segir Daníel glettinn.

„Krafa þeirra var mjög skemmtileg. Þeir vildu gera eitthvað allt annað en hefðbundið hótel og voru tilbúnir til að gera ýmislegt til að gera þetta sérstakt,“ lýsir hann en það rímar mjög vel við hugmyndafræði Daðla.
„Það má segja að Döðlur leggi stundum ansi mikið á sig til að gera aðeins öðruvísi hluti,“ segir Daníel.
„Við tókum hugmyndafræði sem listamenn hafa notað og snýst um að blanda saman há- og lágmenningu. Við sáum að þetta virkaði afar vel í listinni og spurðum okkur hvað myndi gerast ef við yfirfærðum þetta yfir á einhvern stað eins og hótel,“ segir Daníel og strax fóru skemmtilegir hlutir að gerast.
„Við leituðum andstæðna og ákváðum strax að allt sem væri „mainstream“ yrði tekið út. Í staðinn má segja að við séum með plastglös á öðrum endanum og kavíar á hinum en ekkert þar á milli.“

„Þar er fínn veitingastaður og inn af honum karókíherbergi. Við hönnuðum sjálf húsgögn sem búin eru til úr rörum og stálpípum og þau standa við hlið húsgagna eftir heimsfræga hönnuði á borð við Alessandro Mendini, Pierre Chapo, Pierre Paulin, Gerrit Rietveld, Pierre Jeanneret og Ettore Sottsass.“

„Við erum búin að vera andvaka í tvö ár við að komast yfir þessa stóla. Við höfum legið yfir og komið okkur inn í uppboðsheiminn og keyptum flesta þessa stóla á uppboðum í fjarlægum löndum til að fá sem best verð.“

„Við ákváðum að setja allt markaðsféð í að kaupa húsgögn með það að leiðarljósi að þessi flotta og öðruvísi hönnun myndi með tímanum verða næg auglýsing, og það hefur gengið eftir,“ segir Daníel en hótelið hefur fengið góða umfjöllun á hönnunarsíðum á netinu auk þess sem von er á mikilli umfjöllun í tímaritum á næstu misserum.




Oddsson var opnað í sumar og hönnun þess hefur þegar vakið athygli víða um heim. Mynd/Ari Magg
Oddsson er í JL húsinu við Hringbraut, húsi sem hefur sérstakan sess í hugum margra. Vísir/GVA