Thelma Björg Björnsdóttir hafnaði í fjórtánda og neðsta sæti í undarásum í 400 metra skriðsundi, flokki S6, á Ólympíumóti fatlaðra í dag.
Thelma synti á 6:34,71 mínútum og var talsvert frá því að komast í úrslit.
Thelma, sem er nýliði á Ólympíumóti fatlaðra, hefur núna keppt í fjórum greinum.
Hún lýkur leik á sunnudaginn þegar hún keppir í 100 metra skriðsundi.

