Tim Cook, framkvæmdastjóri Apple, segir niðurstöðu framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins um skattamál fyrirtækisins í Írlandi anga af pólitík og að hún sé ósanngjörn. Framkvæmdastjórninn úrskurðaði að Apple hefði fengið þrettán milljarða evra afslátt af skatti í Írlandi.
Það samsvarar um 1.700 milljörðum króna.
Tim Cook sagði það ekki rétt og í samtali við vefinn RTÉ.ie í Írlandi segist hann vongóður um að úrskurðinum verði snúið við í áfrýjunarferlinu.
Framkvæmdastjórnin heldur því fram að vegna samkomulags Apple og stjórnvalda Írlands hafi Apple einungis greitt 0,005 prósent í skatta af hagnaði sínum í Evrópu árið 2014.
Cook segir það kolrangt. Hann segir meðalskatt fyrirtækisins á heimsvísu vera 26,1 prósent. Þá benti hann á að árið 2014 hafi Apple greitt einn af hverjum 15 dollurum sem greiddir voru í skatt af fyrirtækjum í Írlandi. Fyrirtækið hafi verið stærsti skattgreiðandi Írlands árið 2014.
Hann segir greiðslur þeirra hafa verið um 400 milljónir dala og skatturinn hafi verið 12, 5 prósent. Þá bendir hann á að þegar Apple gerði samkomulagið við Írland hafi fyrirtækið verið næstum því gjaldþrota og tilgangurinn hafi alls ekki verið að komast undan skatti.
„Við höfum ekki gert neitt rangt og ekki heldur stjórnvöld Írlands.“
Deilt um skattstofna
AFP fréttaveitan segir úrskurð framkvæmdastjórnarinnar varpa ljósi á þær 2,4 billjónir dala sem bandarísk fyrirtæki hafi komið undan skatti í skattaskjólum. Þeir peningar eru vænlegt skotmark ríkisstjórna um heim allan og þrátt fyrir að Bandaríkin geri tilkall til skattheimtu þeirra eru peningarnir að mestu komnir til frá tekjum bandarískra fyrirtækja í öðrum löndum.
Fyrirtæki eins og Apple, Microsoft, General Electric og Pfizer eru hins vegar að bíða eftir því að yfirvöld í Bandaríkjunum lækki skatta á fyrirtæki.
Yfirvöld í Bandarkjunum líta á úrskurð framkvæmdastjórnarinnar sem tilraun til að skattleggja tekjur sem Bandaríkin eigi rétt á.
Tim Cook segir niðurstöðuna anga af pólitík
Samúel Karl Ólason skrifar

Mest lesið


Birta stendur frammi fyrir 1,5 milljarða tapi á Play
Viðskipti innlent


Samkaup segja upp tuttugu og tveimur
Viðskipti innlent

Ósátt með samráðsleysi stjórnvalda
Viðskipti innlent

Vonast til að hefja slátrun árið 2028
Viðskipti innlent


Öryggismyndavélar á grenndarstöðvum eigi að sporna við sóðaskap
Viðskipti innlent

Atvinnuleysi minnkar lítillega
Viðskipti innlent

Kalla inn geislavirka límmiða
Neytendur