Stálu menntaskólastelpu og slökkviliðið tók hann í gegn Stefán Árni Pálsson skrifar 30. ágúst 2016 12:00
Snapchat-keppnin So You Think You Can Snap!, þar sem framhaldsskólar landsins etja kappi, heldur nú áfram á annarri keppnisviku. Sigurgeir Andri Ágústsson úr FB og Fannar Freyr Ómarsson úr MS mættust í gær á sjötta keppnisdegi. Hægt er að horfa á framlag þeirra í spilaranum hér að ofan. Sigurgeir Andri fer yfir í annan framhaldsskóla og rænir þar nemanda úr MS. Fannar Freyr var spúlaður af slökkviliðinu og í þokkabót var hann nakinn. Tuttugu framhaldsskólar hafa skráð sig til leiks í keppninni. Hver skóli teflir fram einum snappara en keppnin fer fram á Snapchat-reikningi Áttunnar, Attan_official, og fer atkvæðagreiðslan fram þar.Tveir skólar keppa á dag og reyna snappararnir að öðlast hylli áhorfenda með fyndnum, skemmtilegum eða áhugaverðum snöppum. Áhorfendur velja svo þann sem þeim þykir betri með skjáskoti í lok dags. Sá skóli sem fær fleiri skjáskot og þar af leiðandi atkvæði kemst áfram í undanúrslit. Atkvæðagreiðsla fyrir fimmta keppnisdag kláraðist í gær en þar mættust Óli Bjarki Austfjörð og Júlíus Óli Stefánsson fyrir hönd Framhaldsskólans í Vestmannaeyjum og Menntaskólans í Kópavogi. Júlíus Óli vann það einvígi fyrir hönd MK og mun því halda áfram í næstu umferð.Júlíus Óli stóð sig vel.Verslunarskóli Íslands og Kvennaskólinn mætast í dag, á sjöunda keppnisdegi, og er hægt að fylgjast með einvíginu á Snapchat-reikningnum Attan_official. Við munum birta myndband af keppni þeirra hér á Vísi á morgun. Keppnin heldur áfram næstu vikurnar og mun Vísir fylgjast grannt með gangi mála. Að keppninni stendur samfélagsmiðlaþátturinn Áttan, sem þeir Nökkvi Fjalar, Aron Ingi og Egill Ploder skipa. Nýherji er bakhjarl keppninnar og fær sigurvegarinn nýja Lenovo tölvu í vinning.Dagskrá keppninnar:22. ágúst Fjölbrautarskóli Vesturlands vs. Menntaskólinn við Hamrahlíð (sigurvegari)23. ágúst Fjölbrautarskóli Mosfellsbæjar vs. Menntaskólinn á Tröllaskaga (sigurvegari)24. ágúst Framhaldsskólinn á Húsavík (sigurvegari) vs. Tækniskólinn25. ágúst Menntaskólinn á Akureyri (sigurvegari) vs. Fjölbraut við Ármúla26. ágúst Framhaldsskólinn í Vestmannaeyjum vs. Menntaskólinn í Kópavogi (sigurvegari)29. ágúst Fjölbraut í Breiðholti vs. Menntaskólinn við Sund30. ágúst Kvennaskólinn vs. Verzlunarskóli Íslands31. ágúst Fjölbrautarskóli Snæfellinga vs. Fjölbraut í Garðabæ1. september Menntaskólinn í Reykjavík vs. Verkmenntaskólinn á Akureyri2. september Fjölbrautarskóli Suðurlands vs. FlensborgarskólinnSigurvegarinn hlýtur Lenovo tölvu frá Nýherja.
So You Think You Can Snap! Tengdar fréttir Hundurinn borðaði heimavinnuna og fór rakleiðis í ljós Óli Bjarki lætur ljós sitt skína í stærðfræðitíma en Júlíus Óli lætur ljósið skína á sig á sólbaðsstofu. 29. ágúst 2016 13:00 Hrekkti skólameistarann og stal snakki af ferðamönnum Óskar Páll frá Húsavík og Sveinn Andri frá Tækniskólanum beittu hrekkjum til að tryggja sigur í So You Think You Can Snap! 25. ágúst 2016 14:00 Dreif á sig maskann og lét mana sig út í vitleysu Brynjar Steinn frá Akureyri og Ísabella Ýrr úr Fjölbraut við Ármúla tókust á í So You Think You Can Snap! 26. ágúst 2016 12:15 Mest lesið Einhleypir og eftirsóttir sumarstrákar Lífið „Ég er ekki stoltur af því hvernig ég lét“ Lífið Forrest Gump rokksins allur Tónlist Útför Björgvins Halldórssonar í beinni á Vísi og Sýn Tónlist Jenner og Elordi verið að hittast síðustu mánuði Lífið Keppast um titilinn Ungfrú Ísland í kvöld Lífið Orkugeirinn kom saman á ársfundi Orkuveitunnar Lífið Furðulegar Eddutilnefningar: Nína Dögg, Ólafur Darri og Edda sniðgengin Menning Rifjaði upp martröðina á Arnarhóli Lífið Oddvitaáskorunin: Þegar byrjuð að skrifa ævisöguna Lífið Fleiri fréttir Orkugeirinn kom saman á ársfundi Orkuveitunnar Áttu að föndra dýr aftan á bolinn Keppast um titilinn Ungfrú Ísland í kvöld Jenner og Elordi verið að hittast síðustu mánuði Oddvitaáskorunin: Þegar byrjuð að skrifa ævisöguna Einhleypir og eftirsóttir sumarstrákar Rifjaði upp martröðina á Arnarhóli Fagnaði sigri með bumbukossi „Ég er ekki stoltur af því hvernig ég lét“ Laufey með lag í nýja Pradadjöflinum Særir burt drauga og dáleiðir sársauka í burtu Sigurður Ingi brenndi jakkafötin á tímamótum Hafi alltaf trúað því að gæskan myndi sigra Hvítvín, sushi og blautir kossar í Smárabíói Oddvitaáskorunin: Öfundar alla sem kunna pólsku Köttur í Kópavogi vekur athygli um allan heim Hleypur um LA og ætlar að vinna Bakgarðinn „Það eru margar drottningar í Flokki fólksins“ Daði Freyr og Gugusar koma fram á Hálendishátíð Ari Edwald selur í Garðabænum „Justin Bieber var með sturtuhausinn minn“ Sleikbás, smokkar og sjóðheitar skvísur „Eins og að vera með tifandi tímasprengju innra með sér“ Stjörnulífið: „Var að berjast við að gráta ekki“ Áttu aldrei von á að verða foreldrar innan árs Ómögulegt að afneita sorginni til lengri tíma Krakkatía vikunnar: LEGO, lakkrís og kubbalaga saur Alex fetaði í fótspor Bó á dánardegi hans Opnar sig um kvíða og þunglyndi Láta lægð í kvikmyndaiðnaði ekki stöðva sig og opna nýtt stúdíó Sjá meira
Hundurinn borðaði heimavinnuna og fór rakleiðis í ljós Óli Bjarki lætur ljós sitt skína í stærðfræðitíma en Júlíus Óli lætur ljósið skína á sig á sólbaðsstofu. 29. ágúst 2016 13:00
Hrekkti skólameistarann og stal snakki af ferðamönnum Óskar Páll frá Húsavík og Sveinn Andri frá Tækniskólanum beittu hrekkjum til að tryggja sigur í So You Think You Can Snap! 25. ágúst 2016 14:00
Dreif á sig maskann og lét mana sig út í vitleysu Brynjar Steinn frá Akureyri og Ísabella Ýrr úr Fjölbraut við Ármúla tókust á í So You Think You Can Snap! 26. ágúst 2016 12:15