Herdís sækist eftir 5. sæti Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 25. ágúst 2016 15:49 Herdís Anna Þorvaldsdóttir. Mynd/Aðsend
Herdís Anna Þorvaldsdóttir gefur kost á sér í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík sem fer fram 3. septeber næstkomandi. Herdís er fulltrúi Sjálfstæðisflokksins í stjórn Hverfisráðs Grafarvogs auk þess að vera varamaður í Umhverfis og skipulagsráði, Menningar og ferðamálaráði og Skóla og frístundaráði Reykjavíkur. Herdís er jafnframt formaður Efnahags og viðskiptanefndar Sjálfstæðisflokksins ásamt því að sitja í stjórn Hvatar, félagi sjálfstæðiskvenna í Reykjavík og framkvæmdastjórn Landsambands Sjálfstæðiskvenna Eiginmaður Herdísar er Haukur Þór Adólfsson, pípulagningameistari. Þau búa í Grafarvogi ásamt þremur börnum. Herdís er framkvæmastjóri þyrluþjónustunnar Helo og hefur víðtæka reynslu af atvinnulífinu. Hún er eina konan sem gegnir stöðu Accountable Manager gagnvart flugrekstrarsviði Samgöngustofu á landinu í dag. Hún hefur látið til sín taka í ýmsum félags og góðgerðastörfum. Hún er formaður flugnefndar SAF, Samtaka ferðaþjónustunnar, er í stjórn Reykjavik International School og sat í ráðgefandi stjórn Valamed ehf. (sem er sprotafyrirtæki á heilbrigðissviði). Herdís er með MBA, meistaragráðu í viðskiptastjórnun frá Háskólanum í Reykjavík og útskrifaðist með diplóma í alþjóðaviðskiptum frá sama skóla, hún er einnig tækniteiknari. Hún sat í gæðaráði MBA námsins, var formaður stjórnar Embla, félags kvenna með MBA frá HR og hefur stýrt fjáröflun fyrir UN Women. Herdís hefur unnið margvísleg verkefni tengd markaðssetningu og stefnumótun og vann fyrir utanríkisráðuneytið að sérverkefni þar sem hún gerði úttekt og skrifaði skýrslu um þátttöku Íslands í Expo heimssýningunum og markaðssetningu ráðuneytisins á Íslandi erlendis. Herdís leggur áherslu á þau málefni sem tengjast þekkingu og starfsreynslu hennar, eins og efnahagsmál, ferðaþjónustuna, menntamál, samgöngur og umhverfismál. „Ég tel það vera lykilatriði að viðskiptaumhverfið sé einfalt og aðgengilegt og að fyrirtæki og einstaklingar njóti frelsis til orðs og athafna. Við eigum að halda áfram að einfalda skattkerfið og létta af tollum og skapa hvetjandi umhverfi en ekki íþyngjandi. Ég vil stuðla að aukinni samkeppnishæfni íslensks atvinnulífs og laða að okkur spennandi atvinnutækifæri og mannauð. Við þurfum að halda áfram uppbyggingu innviða, vanda okkur við forgangsröðun í samgöngum með umferðaröryggi í forgrunni og auka valfrelsi í mennta og heilbrigðismálum. Ég vil auka sveigjanleika í lífeyriskerfinu og endurskoða tekjutengingar. Þá legg ég áherslu á sjálfbærni í umgengni okkar við umhverfið og náttúruna,“ segir í tilkynningu frá Herdísi.
Kosningar 2016 Mest lesið Varar við viðskiptum við Öskju eftir miklar hrakfarir Innlent Banaslys við Fossá Innlent Ályktun um stjórnarslit á dagskrá hjá VG Innlent „Við getum ekki treyst Hagkaup í Skeifunni fyrir unglingunum“ Innlent Skyldur vinnuveitenda gífurlegar í erfiðum málum Innlent Móðir ákærð fyrir stórfellda líkamsárás Innlent Smíði Ölfusárbrúar í uppnámi vegna skilyrðis fyrir ríkisábyrgð Innlent „Þegar ég hugsa til baka þá fæ ég bara kökk í hálsinn“ Innlent Blöskrar framkoma sérsveitar og afskiptasemi nágranna Innlent Erlend glæpagengi fá Íslendinga til að ræna reiðhjólaverslanir Innlent Fleiri fréttir Varar við viðskiptum við Öskju eftir miklar hrakfarir Ályktun um stjórnarslit á dagskrá hjá VG Skyldur vinnuveitenda gífurlegar í erfiðum málum Staðan miklu alvarlegri þegar vígvöllurinn er stærri Móðir ákærð fyrir stórfellda líkamsárás Smíði Ölfusárbrúar í uppnámi vegna skilyrðis fyrir ríkisábyrgð „Við getum ekki treyst Hagkaup í Skeifunni fyrir unglingunum“ „Þegar ég hugsa til baka þá fæ ég bara kökk í hálsinn“ Banaslys við Fossá Erlend glæpagengi fá Íslendinga til að ræna reiðhjólaverslanir Miðflokkurinn marktækt stærri en Sjálfstæðisflokkurinn Tíðindi í glænýrri könnun, innbrotafaraldur og biðin sem sligar fjölskyldur Fjögur í varðhaldi vegna innbrota í Elko Tveir í bílnum sem ók út af Nokkur vitni að banaslysi við Brúará Stefnt að hertara eftirliti á landamærunum í nóvember Inga skellihló að Sigurði Inga Útsvarsaukningin aðeins hugsuð til tveggja ára Skerða orku til stórnotenda Alvarlegt umferðarslys við Fossá á Skaga Segir fjármálaráðherra ekki kunna að reikna Blöskrar framkoma sérsveitar og afskiptasemi nágranna Tveir hafa játað sök í stóra fíkniefnamálinu sem fer ekki fet Verður formaður stjórnar Matvælasjóðs Faðirinn ekki lengur í einangrun Þurfi að komast út úr kjarasamningum „með góðu eða illu“ Landris og kvikusöfnun heldur áfram Sigurður Ingi segir skort á sálfræðingum vandamál Baldur greiddi fjórðung kostnaðar við framboð sitt sjálfur Maðurinn fannst látinn Sjá meira