Danir töpuðu og misstu 2. sætið Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 15. ágúst 2016 19:20 Daniel Narcisse skorar eitt átta marka sinna í leiknum í dag. vísir/getty
Danir töpuðu með þriggja marka mun, 33-30, fyrir Frökkum í síðasta leik þeirra í A-riðli handboltakeppninnar á Ólympíuleikunum í Ríó í dag. Lærisveinar Guðmundar Guðmundssonar luku því leik í riðlakeppninni með sex stig, eftir þrjá sigra og tvö töp. Danir enduðu í 3. sæti A-riðils og mæta Slóvenum í 8-liða úrslitunum. Það var fátt um varnir í leik dagsins og bæði lið skoruðu nánast að vild. Frakkar leiddu með einu marki í hálfleik, 17-16, en Danir byrjuðu af krafti í seinni hálfleik og komust í 18-22 eftir 6-1 kafla. Þá sögðu Ólympíumeistararnir stopp og sigu jafnt og þétt fram úr danska liðinu. Frakkar breyttu stöðunni úr 22-24 í 29-26 og unnu að lokum þriggja marka sigur, 33-30. Kentin Mahe var markahæstur í liði Frakka með níu mörk en Daniel Narcisse kom næstur með átta. Þessi reyndi kappi var með 100% skotnýtingu í leiknum. Frakkland mætir Brasilíu í 8-liða úrslitunum. Mikkel Hansen skoraði átta mörk fyrir Dani og Lasse Svan Hansen sex.
Ólympíuleikar 2016 í Ríó Mest lesið Vann undrabarnið og braut blað í íslenskri golfsögu Golf „Við fengum ekki það sem við áttum skilið“ Enski boltinn „Ætla að sýna að ég er rétti maðurinn“ Fótbolti Barca valtaði yfir erkifjendurna og vann Ofurbikarinn Fótbolti Frábær sigur hjá Cecilíu Rán og Napoli jók forystuna á ný Fótbolti Uppgjörið: Haukar - Galychanka Lviv 24-22 | Haukakonur í 8-liða úrslit Evrópubikarsins Handbolti Guðlaugur Victor mætir Liverpool og fjórir úrvalsdeildarslagir Fótbolti „Fann frá fyrstu mínútu að þetta var okkar dagur“ Enski boltinn Græddi meira á fyrstu vikunni á Onlyfans en allan körfuboltaferilinn Körfubolti „Eina leiðin fyrir mig til að lifa af í þessu eitraða umhverfi“ Fótbolti Fleiri fréttir Uppgjörið: Haukar - Galychanka Lviv 24-22 | Haukakonur í 8-liða úrslit Evrópubikarsins „Mjög fegin að við kláruðum þetta“ Dana fór illa með færin sín en það kom ekki að sök Vandræði sonarins björguðu sænska landsliðsmanninum Haukar með tveggja marka forskot fyrir seinni leikinn Thea tryggði Val jafntefli með marki á lokasekúndunum Sigur hjá Díönu Dögg í Evrópudeildinni Uppgjörið: Svíþjóð - Ísland 26-24 | Svekkjandi tap í síðasta leik fyrir HM Aldís Ásta frábær í stórsigri Sjötta tapið í röð hjá Eyjakonum Þórir hefur ekki áhuga „Ætla að halda áfram að pumpa væntingarnar“ Strákarnir hans Dags fóru illa með mótherja Íslands Sandra og félagar sterkari á taugum í lokin Hafsteinn Óli utan hóps hjá Grænhöfðaeyjum HM úr sögunni hjá Arnari Frey „Það mikilvægasta sem við eigum“ Enn óvíst að stuðningsmenn Íslands fái HM-treyjur: „Afskaplega leitt“ Sveinn kallaður inn í landsliðið vegna meiðsla Arnars Freys Uppgjörið: Svíþjóð - Ísland 31-31 | Góð fyrirheit fyrir HM Tómarúm eftir brotthvarf Landins og Hansens úr landsliðinu Dagur hundóánægður eftir sigur og saknar lykilmanns Eyjaför hjá bikarmeisturunum Fengið spark í rassgatið frá Guðjóni Val „Vonandi eitthvað til að byggja á í Evrópuleiknum“ Haukakonur byrja nýtt ár á tveimur sigurleikjum Díana Dögg kom að fjórum mörkum í stórsigri á gömlu félögunum Uppgjörið: Valur - Fram 31-28 | Valskonur láta ekkert undan Dana Björg ekki tapað síðan hún kom til baka af EM Tapaði fyrir Þóri í úrslitaleik EM og er líka hættur Sjá meira