Strákarnir okkar eru komnir til Parísar þar sem þeir eiga fyrir höndum síðasta leik sinn í riðlakeppni EM 2016 gegn Austurríki á Stade de France, þjóðarleikvangi Frakklands, klukkan 16.00 á morgun.
Eins og vanalega flaug liðið frá Chambéry en það lenti á Charles de Gaulle-flugvellinum í París rétt fyrir klukkan 14.00 í dag.
Sérmerkt rúta beið strákanna og eins og alltaf voru vopnaðir verðir, lögreglan og sérsveitin til staðar til að passa okkar menn.
Íslenska liðið verður með blaðamannafund klukkan 15.45 að íslenskum tíma á Stade de France sem verður í beinni á Vísi. Þeir æfa svo á þessum magnaða leikvangi klukkan 16.30.
Ekki missa af neinu sem gerist á EM í Frakklandi. Vísir er með hóp fjölmiðlamanna á mótinu sem færa ykkur allar nýjustu fréttirnar af strákunum okkar. Fylgdu okkur á Facebook, Twitter og Snapchat (sport365).
Strákarnir lentir í París

Tengdar fréttir

EM í dag: Ekki sama England lengur og Ísland gæti tekið Wales á þetta
Strákarnir okkar fljúga til Parísar í dag þar verður enginn ætlar að skoða Monu Lísu.

EM dagbók: Ekkert meir „we almost beat them“ á Stade de France
Leikurinn gegn Portúgal var sá stærsti, svo var það leikurinn gegn Ungverjum og nú er það leikurinn gegn Austurríki.

Hafa unnið sér inn traust þjóðarinnar
Strákarnir okkar mæta Austurríki í lokaumferð riðlakeppni EM á Stade de France á miðvikudaginn. Náist ekki að minnsta kosti punktur í París er frumraun Íslands á EM í Frakklandi lokið. Íslenska liðið ætlar sér hinsvegar áfram.