Svona byrjar grein á vef Sky Sports þar sem enska landsliðið er varað við því að Ísland gæti verið Leicester Evrópumótsins og þar af leiðandi staðið uppi sem óvæntur sigurvegari.
Ísland er minnsta þjóðin sem kemst á stórmót í sögunni en á Íslandi búa aðeins 330.000 manns. Það eru jafnmargir og í Leicester sem stóð uppi sem afar óvæntur enskur meistari á síðustu leiktíð. Sky Sports bendir á að margt sé líkt með liðunum.

Reyndir þjálfarar:
Fáir höfðu trú á Ítalanum Claudio Ranieri þegar hann tók við Leicester en hann kom öllum á óvart og gerði Leicester að meistara í fyrsta sinn í sögunni. Reynsla hans vó þungt en hann er 64 ára gamall. Lars Lagerbäck er einnig eldri en tvævetur í bransanum en hann er 67 ára gamall.
Sagan:
Hvorki Leicester né Ísland átti sér ríka fótboltasögu áður en enska liðið tók sig til og vann ensku úrvalsdeildina. Leicester hafði unnið þrjá deildabikara í 131 árs sögu félagsins áður en það varð enskur meistair. Ísland komst ekki á 40 stórmót í röð frá 1974 til 2014 áður en það tryggði sér sæti á EM 2016.

Á vellinum sjálfum eru liðin keimlík að mati Sky Sports. Af 20 liðum í ensku úrvalsdeildinni var Leicester í 17. sæti þegar kom að því að vera með boltann eða 42,5 prósent og sendingarprósentan var aðeins 70,5 prósent. Ísland er í 23. af 24. sæti þegar kemur að því að halda boltanum en íslenska liðið hefur verið með boltann 34,3 prósent í leikjunum að meðaltali. Þá er sendingaprósentan aðeins 60,9 prósent. Samt er liðið ósigrað á mótinu.
Liðsandinn:
Claudio Ranieri lýsti liðsandanum í Leicester á síðustu leiktíð sem þeim besta sem hann hafði upplifað á sínum langa ferli og hann er eins hjá Íslandi. Á blaðamannafundi Íslands í gær sagði Theodór Elmar Bjarnason: „Þetta sýnir hvað lið geta gert þegar liðsandinn er góður og enginn er að spila fyrir sjálfan sig. Það er ótrúlegt að vera hluti af þessu liði og ég er virkilega stoltur. Það er magnað að spila með góðvinum mínum sem ég spilaði fyrst með í U17 ára landsliðinu.“

Liðsandinn er lykilinn á bakvið árangur Íslands og Leicester að því fram kemur í úttekt Sky Sports en bæði lið eru þó með einstaklingsgæði sem ekki má hleyma. Leicester með Jamie Vardy, Riyad Mahrez og N'Golo Kante á meðan Ísland treystir á Gylfa Þór Sigurðsson. Gylfi er búinn að skora fjórtán mörk í 41 landsleik og var markahæstur í undankeppninni með sex mörk. Gylfi er líka stórhættulegur í föstum leikatriðum.
Engin pressa:
Claudio Ranieri gerði lítið annað allt síðasta tímabil í ensku úrvalsdeildinni en að segja að Leicester gæti aldrei unnið titilinn. Ísland er líka að spila pressulaust enda býst enginn við að íslenska liðið geri nokkurn skapaðan hlut á þessu móti. Öll pressan er á Englandi í næsta leik íslenska liðsins.
Ástríðufullir stuðningsmenn:
Ranieri þakkaði stuðningsmönnum Leicester sérstaklega fyrir stuðninginn á síðustu leiktíð og sagði þá stóra ástæðu fyrir velgengni liðsins. Evrópu hefur svo sannarlega fengið að kynnast íslenskum stuðningsmönnum sem hafa sett sinn svip á Evrópmótið með frábærum stuðningi og mikilli gleði.
Alla úttektina má lesa hér.