Flottasta förðunin í Cannes Ritstjórn skrifar 19. maí 2016 20:00 Kendall Jenner var með dökka smokey augnförðun og með hárið vatnsgreitt aftur. Þessi förðun passar fullkomlega við kjólinn hennar.
Glamour fer yfir hvaða stjörnur sköruðu framúr þegar að það kemur að förðun og hári á kvikmyndahátíðinni í Cannes. Blake Lively er ótvíræður sigurvegari rauða dregilsins í Cannes. Hún er yfirlett með látlausa förðun og nude varalit en hér er hún með einstaklega fallegan rauðan varalit sem passar vel við gula kjólinn hennar. Hárið hennar er líka alltaf óaðfinnanlegt.Stórleikkonan Helen Mirren slær alltaf í gegn á rauða dreglinum. Þessi förðun og hárgreiðsla slær hins vegar öll met. Dökk augu og hárið greitt aftur fer Helen ótrúlega vel.Það er búið að fara mikið fyrir Kristen Stewart þetta árið í Cannes en hún heldur áfram að toppa sig í fatavali. Þessi skemmtilega og öðruvísi förðun kemur dressinu hennar upp á nýjar hæðir.Irina Shayk lítur út fyrir að vera nánast ómáluð. Fersk og sumarleg förðun sem allir ættu að geta apað eftir.Bella Hadid kom öllum á óvart með þessum feikaða toppi á rauða dreglinum. Það getur verið gaman að breyta til og það er enn betra þegar hægt er að redda hlutunum án þess að þurfa að fara í klippingu. Förðunin er látlaus sem leyfir hárinu og kjólnum að njóta sín meira.Rosie Huntington-Whiteley var rómantísk í rauðum pífum og hárið passaði vel við. Hár snúður og rauðar varir fullkomna dressið.
Mest lesið Kylie litar sig aftur dökkhærða Glamour Þetta eru fyrirsæturnar sem ganga í Victorias Secret tískusýningunni Glamour Kendall Jenner er nýtt andlit Mango Glamour Veikt pund styrkir stöðu Asos Glamour Beyonce mætt með stelpugengið sitt í nýju herferð Ivy Park Glamour Serena Williams situr fyrir í Sports Illustrated Glamour Miklu meira en bara fataverslun Glamour Harper Beckham hannar sína fyrstu flík aðeins 4 ára gömul Glamour „Lítur út eins og 75 ára gömul kona frá Miami.“ Glamour Bella Hadid opnar sig um sambandsslitin við The Weeknd Glamour