Íþróttadeild 365 spáir Val fimmta sæti Pepsi-deildarinannar í sumar, en það er sama sæti og liðið hafnaði í á síðasta ári. Valsmenn voru í baráttu um sæti ofar en fimmta en gáfu svolítið eftir þegar þeir tryggðu sér bikarmeistaratitilinn. Mikið miðjumoð hefur verið á Val síðan liðið varð síðast meistari 2007 en það hefur ekki endað ofar en fimmta sæti síðan. Síðasta tímabil lofaði þó mjög góðu. Valur hefur 20 sinnum orðið Íslandsmeistari, síðast árið 2007.
Ólafur Jóhannesson tók við Val fyrir síðustu leiktíð og var ekki lengi að ná árangri. Níu ára titlaþurrki lauk með bikarmeistaratitli eftir glæsilegan sigur á KR. Valsliðið vann marga flotta sigra í deildinni og var mun meiri og betri heildarbragur á liðinu eftir að Ólafur tók við með Sigurbjörn Hreiðarsson sér til aðstoðar. Þeir félagarnir virðast á hárréttri leið með Valsliðið.

Valsmenn fá afskaplega þægilega byrjun á mótinu og hugsa sér eflaust til mikillar og góðrar stigasöfnunar í hraðmótinu. Þeir byrja heima gegn Fjölnisliði sem gæti verið að stilla saman strengina í byrjun móts og eiga svo báða nýliða í fyrstu fimm umferðunum. Völsurum gekk mjög vel í Árbænum í fyrra þannig ekki ætti Floridana-völlurinn að hræða þá mikið. Erfiðasti leikurinn verður líklega úti gegn Víkingi, sjónvarpsleikur í fjórðu umferð.
01. maí: Valur – Fjölnir, Valsvöllur
08. maí: Víkingur Ó. – Valur, Ólafsvíkurvöllur
12. maí: Valur – Fylkir, Valsvöllur
17. maí: Víkingur – Valur, Víkingssvöllur
22. maí: Valur – Þróttur, Valsvöllur

Bjarni Ólafur Eiríksson: Einn allra besti bakvörður landsins og algjör lykilmaður hjá Val. Hann er ekki bara frábær varnarmaður heldur líka stór hluti af sóknarleiknum en fyrirgjafir hans eru margar hverjar frábærar og langar sendingar hans út úr vörninni geta breytt vörn í sókn á tveimur sekúndum. Það fer ekki mikið fyrir Bjarna enda lítið fyrir að hafa sig frammi en inn á vellinum er hann ómetanlegur fyrir Valsliðið og framtíð þess.
Kristinn Freyr Sigurðsson: Miðjumaðurinn sló í gegn í fyrra og var einn af bestu leikmönnum Íslandsmótsins og líklega sá besti á fyrra hluta mótsins. Sóknarleikur Vals fór algjörlega í gegnum hann í fyrra og mun að stóru leyti gera það áfram. Ef Valur ætlar að taka næsta skref og berjast um Íslandsmeistaratitilinn verður Kristinn að gera það líka en hann hefur svo sannarlega hæfileikana til þess.
Sigurður Egill Lárusson: Kantmaðurinn sparkvissi stimplaði sig rækilega inn sem einn af betri sóknarmönnum deildarinnar á síðustu leiktíð og var mun stöðugri í sínum leik heldur en oft áður. Framherjar Vals nutu góðs af spyrnugetu hans en Sigurður er frábær spyrnumaður, bæði þegar hann gefur fyrir á ferð og einnig úr föstum leikatriðum. Þar sem Patrick Pedersen er farinn þurfa framherjar Vals enn betri þjónustu og í henni er Sigurður lykilmaður.

Komnir:
Guðjón Pétur Lýðsson frá Breiðabliki
Rasmus Christiansen frá KR
Rolf Toft frá Víkingi
Nikolaj Hansen frá FC Vestsjælland
Sindri Björnsson frá Leikni á láni
Farnir:
Patrick Pedersen í Viking
Iain Williamson í Víking
Anton Ari Einarsson í Grindavík á láni
Emil Atlason var á láni
Hilmar Þór Hilmarsson í Fram
Mathias Schlie úr láni
Thomas Guldborg til Lyngby
Valsliðið varð fyrir miklu áfalli þegar danski framherjinn Patrick Pedersen var seldur til Viking eftir Íslandsmótið en hann var ásamt Kristni Freyr potturinn og pannan í sóknarleik Vals á síðustu leiktíð. Gullskórinn sjálfur farinn.
Til að leysa hann af hólmi kom annar Dani, Nikolaj Hansen. Hann hefur ekki verið að heilla á undirbúningstímabilinu og nældu Valsmenn því til öryggis líka í Rolft Toft sem spilaði með Víkingi í fyrra og Stjörnunni árið á undan því. Hvort Toft eigi eftir að henta sóknarleik Vals mun koma í ljós en hvorugir þessara manna er jafngóðir og Patrick Pedersen.
Þar sem Valsmenn gerðu mjög vel í að styrkja sig er á miðsvæðinu. Þeir misstu Iain Williamson en fengu á móti Guðjón Pétur Lýðsson frá Breiðabliki og U21 árs landsliðsmanninn Sindra Björnsson frá Leikni á láni. Guðjón Pétur hefur verið einn besti miðjumaður deildarinnar undanfarin ár og einn allra besti spyrnumaður deildarinnar. Miðjukjarninn með þá Hauk Pál, Kristinn Frey, Guðjón og Sindra er mjög sterkur og er vart betri og dýpri miðju að finna í deildinni.
Rasmus Christiansen er svo mættur í miðvörðinn til að leysa samlanda sinn Thomas Guldborg af. Hann var sem hvalreki í varnarleik Vals á síðustu leiktíð og verður erfitt að fylla skarð hans. Rasmus leit ekki út eins og gamli Rasmus með KR í fyrra en þá var hann að jafna sig eftir krossbandsslit.
Valsmenn gerðu í heildina mjög góða hluti á félagaskiptamarkaðnum og styrktu það sem þarf að styrkja.

Valsliðið er óhemju vel mannað og með hóp á góðum aldri. Haukur Páll og Guðjón Pétur voru lykilmenn þarna fyrir fimm árum og eru nú eldri og reyndari. Kristinn Freyr er svo með þeim inn á miðjunni sem er líka frábær leikmaður. Þetta eru leikmenn sem þekkja hvorn annan inn og út og svo er liðið með besta vinstri bakvörðinn í deildinni.
Mínar þyngstu áhyggjur fyrir hönd Valsmanna er markaskor og markvarsla. Valsmenn voru svo sannarlega með markaskorara á síðustu leiktíð í Patrick Pedersen. Ingvar Þór kale, markvörður, hefur líka valdið mér áhyggjum á undirbúningstímabilinu þrátt fyrir að vera einn besti markvörður íslenska boltans undanfarinn áratug. Mér hefur fundist hann eiga erfitt uppdráttar í vetur.
Valur er líka með reynslumesta þjálfarann í deildinni og ef allt er eðlilegt á Valur að gera betur en í fyrra þegar liðið hafnaði í fimmta sæti.

Spurningamerkin eru... nýju framherjarnir. Það er ekkert grín að leysa Patrick Pedersen af hólmi en hvort Nikolaj Hansen sé einfaldlega nógu góður til að hjálpa Val að berjast um titilinn er stórt spurningamerki eins og hann hefur spilað síðan hann gekk í raðir liðsins. Það að hann og Rolf Toft skori mörk er lykilatriði fyrir Valsliðið því það var að missa markahæsta leikmann Íslandsmótsins.

Helst varnarleikurinn jafnþéttur og Ingvar Þór Kale verður jafnöflugur í markinu og hann var í fyrra. Menn haldast tiltölulega heilir og miðjan hjá Val tekur yfir leiki eins og hún hefur burði til að gera. Dönsku framherjarnir blása á allar hrakspár og skora þau mörk sem þarf til. Gangi flest upp hjá Val er ekkert útilokað að liðið berjist um titilinn enda liðið mjög vel mannað og litlar breytingar verið á milli ára.
Í VERSTA FALLI:
Floppa Toft og Hansen og liðinu gengur illa að skora og tapar stigum sem það á ekki að tapa. Rasmus nær ekki að fylla skarð samlanda síns sem hafði líka svo góð áhrif á Orra Sigurð Ómarsson. Hópurinn er mátulega breiður en í sumum stöðum mega Valsmenn ekki við áföllum. Valsliðið er oft gott til að lenda í svakalegum vandræðum en fari allt á versta veg verður Valur rétt fyrir neðan miðju.