„Við gáfum ÍBV bara stig hér í dag“ Kolbeinn Kristinsson skrifar 28. júní 2026 19:27 Vísir / Anton Brink Jóhannes Karl Guðjónsson, þjálfari FH, var afar svekktur eftir 1-1 jafntefli gegn ÍBV í Bestu deild karla í Kaplakrika í dag.
FH komst yfir í fyrri hálfleik en fékk á sig jöfnunarmark strax á fyrstu mínútu síðari hálfleiks. Jóhannes taldi sína menn hafa gert nóg til að vinna leikinn. „Ég er nú ekki alveg sammála því að þetta hafi bara getað dottið báðum megin. Auðvitað er fullt í fótbolta sem þú hefur ekki stjórn á, en hlutirnir sem við höfðum stjórn á í dag voru þess valdandi að við áttum að vinna leikinn,“ sagði Jóhannes eftir leik. „Mér fannst við gera mikið meira en nóg til þess að skora tvö mörk, sérstaklega í fyrri hálfleik. Markið sem við gefum þeim í seinni hálfleik er alveg galið.“ Jöfnunarmark ÍBV kom eftir aðeins um 40 til 50 sekúndur í síðari hálfleik og þjálfarinn var ósáttur við varnarvinnuna í aðdragandanum. Hann á að gera betur „Það er ekki það sem við erum að leggja upp með. Jökull á að gera betur, Arngrímur á að gera betur og þetta var barnaleg varnarvinna,“ sagði Jóhannes. Hann benti á að FH hefði nú í tveimur heimaleikjum í röð gefið mörk sem hefðu kostað liðið dýrkeypt stig. „Fyrst á móti Þór og svo núna þetta. Flóki gefur víti í síðasta leik og nú gefum við þetta mark. Jökull gefur þeim bara mark núna. Þetta er bara ekkert í boði.“ „Þessir heimaleikir hefðu átt að skila tveimur sigrum, alveg klárt mál að mínu mati. Leikmennirnir eru búnir að leggja ansi mikla vinnu í þetta og það er drullusvekkjandi að klára ekki þennan leik.“ Jóhannes hrósaði þó markverði ÍBV fyrir frammistöðu sína og sagði FH hafa fengið tækifæri til að ná í sigurmarkið. „Markmaðurinn hjá þeim varði hörkuvel. Mér fannst við líka alveg geta náð sigurmarkinu hérna í lokin.“ FH fær Stjörnuna í heimsókn í næsta leik og Jóhannes segir að fókusinn fari fljótt þangað, þó að menn fái að vera svekktir fyrst. „Við vissum alveg að það væri ekkert auðvelt í þessari deild fyrir okkur að spila einhvern fullkominn leik. En við hlupum og börðumst og að mörgu leyti vorum við að gera ansi vel,“ sagði Jóhannes. Hann sagði FH hafa misst aðeins tökin á sóknaruppbyggingunni eftir jöfnunarmarkið. „Við misstum kannski aðeins fókus á sóknarstrúktúrinn okkar í seinni hálfleik, sérstaklega eftir að við fengum á okkur jöfnunarmarkið, í staðinn fyrir að halda áfram að gera sömu hlutina.“ „En að sama skapi vorum við að skapa okkur tækifæri úti á köntunum og koma okkur í stöður. Mér fannst við kannski geta haldið aðeins betur í strúktúrinn þó að þeir hafi skorað svona snemma í byrjun seinni hálfleiks.“ Jóhannes var þó skýr á því að FH hefði gert nóg til að vinna leikinn. „Það breytir því ekki að við gerðum ansi margt vel hér í dag til þess að verðskulda að vinna þennan leik. Við gáfum ÍBV bara stig hér í dag.“ FH hefur þegar tryggt sér Guðmund Andra Tryggvason og Oliver Stefánsson þegar félagaskiptaglugginn opnar. Jóhannes staðfesti að félagið væri einnig að horfa til frekari styrkinga. „Við fengum náttúrulega Oliver Stefánsson líka og Guðmund Andra. Þeir eru báðir komnir og við bíðum eftir að félagaskiptin þeirra gangi í gegn þegar glugginn opnar,“ sagði Jóhannes. „Við erum líka að skoða það að bæta við okkur framherja. Við ætlum að styrkja okkur þegar glugginn opnar, það er alveg klárt.“ Næsti leikur FH er gegn Stjörnunni í Kaplakrika á föstudag. „Við fáum leyfi til að vera drullusvekktir eftir þennan leik í kvöld, en það er leikur á föstudaginn aftur. Það er endurheimt á morgun og svo fullur fókus á að taka kröftuglega á móti Stjörnunni þegar þeir mæta hérna í heimsókn,“ sagði Jóhannes Karl að lokum.
Besta deild karla FH Mest lesið Uppgjörið: Þór - Víkingur 2-1 | Þórsarar fyrstir til að vinna Víkinga Íslenski boltinn Fjórtán ára í byrjunarliði Vals Íslenski boltinn „Sturlað“ að mæta Yamal eftir að hafa baðað hann Fótbolti Bætti heimsmet í míluhlaupi sem hafði staðið í 27 ár Sport Martínez sleppti aðgerð og spilar meiddur Fótbolti Valur - Fram 2-3 | Framarar upp í annað sætið Íslenski boltinn Ætlaði allt um koll að keyra: „Óttuðust að það yrðu óeirðir“ Sport DeChambeau refsað eftir hringinn og dettur niður í fimmta sæti Golf Taylor fagnar ákaft: „Sjáið hvað hún er reið, alveg brjáluð“ Íslenski boltinn Meira en 200 lönd styðja Infantino til fjórða kjörtímabils sem forseta Fótbolti Fleiri fréttir Valur - Fram 2-3 | Framarar upp í annað sætið Uppgjörið: Þór - Víkingur 2-1 | Þórsarar fyrstir til að vinna Víkinga „Þurfum að læra að stýra spennustiginu á milli verkefna“ „Eina leiðin er upp“ Fjórtán ára í byrjunarliði Vals Fékk sigur í fimmtugsafmælisgjöf Topplið Lengjudeildarinnar fær liðsstyrk frá Stjörnunni Stórsigur á Seltjarnarnesi en markalaust í Grindavík Viktor Nói lánaður til Njarðvíkur Taylor fagnar ákaft: „Sjáið hvað hún er reið, alveg brjáluð“ „Það ruglaður að manni finnst maður alltaf bestur“ Systurnar Kara og Katla áfram á skotskónum hjá KR Fylkismenn kláruðu Njarðvíkinga fyrir hlé Bríet Fjóla keypt til Þróttar Aron Einar og Gyrðir Hrafn í Þór Yngri bróðir með frábæra ferilskrá tekur slaginn með KA Sjáðu tvíburana í FH búa til mark í fyrstu tilraun Ari Leifsson í Stjörnuna Fáum svo mörg færi að það er erfitt að skora ekki Haukakonur fengu stóran skell í síðasta leik fyrir endurkomu Söru Afturelding með fjögurra stiga forskot á toppnum Uppgjörið: Gri/Nja - FH 1-6 | Flugeldasýning sendi FH á toppinn Bubbi fékk áritaða KR-treyju í afmælisgjöf Jóhannes Kristinn í FH en „klárlega hluti af framtíðinni í Víkinni“ Adam Ægir mættur til KA Sjáðu Blika fara á toppinn og glæsimark í Eyjum Búið að opna gluggann: Hvað er búið að gerast og hvað þarf að gerast? Uppgjörið: ÍBV - Valur 2-1 | Ferskir Frakkar, eitraðar Eyjakonur og veiklulegur Valur Uppgjörið: Breiðablik - Víkingur 4-1 | Skoruðu þrjú á sjö mínútna kafla Skoða markaðinn til að þurfa ekki að gefa fleiri leiki Sjá meira