Neville bað stuðningsmenn Valencia afsökunar Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 14. mars 2016 17:45 Gary Neville. Vísir/Getty
Gary Neville, knattspyrnustjóri spænska liðsins Valencia, sá ástæðu til að biðja stuðningsmenn félagsins afsökunar á frammistöðu liðsins í spænsku deildinni um helgina. Valencia-liðið tapaði þá 1-0 á móti Levante sem var fyrir leikinn í neðsta sæti deildarinnar. Giuseppe Rossi, fyrrum samherji Gary Neville hjá Manchester United, skoraði sigurmarkið á 64. mínútu leiksins. Þetta var fjórða tap Valencia í síðustu fimm deildarleikjum og liðið er nú í tólfta sæti, átta stigum frá fallsæti. „Það er ekki hægt að verja svona frammistöðu," sagði Gary Neville en Valencia hefur aðeins unnið 3 af 15 deildarleikjum síðan að hann tók við í desember. „Ég tek ábyrgð á þessu og vil biðja stuðningsmenn okkar afsökunar," sagði Gary Neville. Valencia varð í fjórða sæti í spænsku deildinni í fyrra og hefur aðeins einu sinni endað neðar en fimmta sæti á undanförnum sex tímabilum. Það eru liðin tólf ár síðan að Rafael Benítez gerði liðið að meisturum. Valencia hefur unnið þrjá leiki undir stjórn Gary Neville en þeir sigurleikir voru á móti Espanyol, Granada og Malaga. Liðið tapaði 3-1 á móti Atlético Madrid um síðustu helgi. Valencia á eftir erfiða leiki þar á meðal útileiki á móti bæði Barcelona og Real Madrid. Næst á dagskrá er aftur á móti heimaleikur á móti Celta Vigo.
Spænski boltinn Mest lesið „Andlitið á mér var afmyndað“ Fótbolti Stálheppinn að vera á lífi og gæti snúið aftur með Aroni Fótbolti „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Enski boltinn Favre opinberar baráttu við Parkinsons: „Fékk þúsundir heilahristinga“ Sport Óvænt alveg hættur Fótbolti Drukkinn undir stýri og enn í „lederhosen“ Fótbolti Harðneitar því að hafa rekið við í leik Sport Arteta varðist ásökunum: „Þá væri ég mjög tregur“ Enski boltinn Stöðvuðu bardaga Valgerðar Sport Dagfarsprúði maðurinn aldrei verið eins reiður Sport Fleiri fréttir Mbappé úr leik næstu vikurnar Nablinn skellti sér á Kópavogsslaginn: „Leikurinn endar milljón tvö“ Stálheppinn að vera á lífi og gæti snúið aftur með Aroni Drukkinn undir stýri og enn í „lederhosen“ Óvænt alveg hættur „Ótrúlega heilbrigður og flottur hópur“ „Andlitið á mér var afmyndað“ Arteta varðist ásökunum: „Þá væri ég mjög tregur“ „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Til í að taka skóna af hillunni fyrir Barcelona Varalið Villa kreisti út sigur á C-deildarliðinu Madrídingar á tæpasta vaði Naumur sigur dugði City Nkunku með þrennu gegn D-deildarliðinu Davíð Snær skoraði gegn toppliðinu Fram án þriggja gegn KR Guðmundur lagði upp í sigri á meisturunum Aron spilar með Joselu og Rodrigo Stefna stelpurnar okkar næst til Svíþjóðar og Danmerkur? Freyr og Kortrijk segja belgíska blaðið ljúga Aron Einar snýr aftur til Katar Stuðningsmenn gengu berserksgang og þjálfarinn fann fyrir því Segja Frey hafa logið að leikmönnum Haaland fær frí vegna jarðarfarar Eyddi Instagram eftir kynferðisleg skilaboð Mörkin úr Bestu: Sjáðu perlur Gylfa og Ísaks Hafi rætt við Rúnar og Börk og allir jafn undrandi Fyrrum lögmaður Trump vill í enska boltann Nasistaborði í Magdeburg til rannsóknar Þarf vernd lögreglu vegna reiði Rómverja Sjá meira