Sælgætisframleiðandinn Mars hefur innkallað Mars og Snickers-stykkja í 55 löndum. Ákvörðunin var tekin eftir að plast fannst í súkkulaðistykkjum fyrirtækisins sem framleidd eru í Hollandi. Fyrr í dag náði málið einungis til Þýskalands, en það virðist hafa undið verulega upp á sig.
Í tilkynningu frá Matvælaeftirliti Hollands segir að plastið geti leitt til köfnunar.
Fyrirtækið hefur einnig innkallað Milky Way Mini og ákveðnar gerðir af Celebrations-kössum. Þær vörur sem eru innkallaðar eru með „best fyrir“ dagsetningar 19. júní 2016 til 8. janúar 2017.
AP ræddi við talsmann Mars í Hollandi, sem gat ekki gefið upp frekari upplýsingar um hvaða lönd væri um að ræða, né magn. Hægt er að finna lista yfir löndin öll á heimasíðu Mars, en hún lá niðri þegar þetta var skrifað og hefur gert það í dag.
Uppfært 15:55:
Gunnar Grétar Gunnarsson, deildarstjóri innflutningsdeildar SS, sem flytur inn umrædd vörumerki til Íslands, segir að SS hafi ekki fengið upplýsingar um að innkönnunin nái til Íslands.
Innkalla súkkulaði frá 55 löndum
