Forseti Íslands afhenti þeim verðlaunin við hátíðlega athöfn á Bessastöðum í dag.

Í flokki fagurbókmennta voru einnig tilnefnd þau Auður Jónsdóttir fyrir Stóra skjálfta, Hallgrímur Helgason fyrir Sjóveikur í München, Hermann Stefánsson fyrir Leiðina út í heim og Jón Kalmann Stefánsson fyrir Eitthvað á stærð við alheiminn.
Gunnar Helgason var verðlaunaður fyrir bókina Mamma klikk, sem þótti best barna- og ungmennabóka.
Í þeim flokki hlutu einnig tilnefningu þau Arnar Már Arngrímsson fyrir Sölvasögu unglings, Gunnar Theódór Eggertsson fyrir Drauga-Dísu, Hildur Knútsdóttir fyrir Vetrarfrí og Þórdís Gísladóttir fyrir Randalín, Munda og afturgöngurnar.

Í þeim flokki voru einnig tilnefnd þau Dagný Kristjánsdóttir fyrir Bókabörn, Héðinn Unnsteinsson fyrir Vertu úlfur – wargus esto, Páll Baldvin Baldvinsson fyrir Stríðsárin 1938 – 1945 og Smári Geirsson fyrir Stórhvalaveiðar við Ísland til 1915.
Íslensku bókmenntaverðlaunin nema einni milljón króna fyrir hvert verðlaunaverk og eru kostuð af Félagi íslenskra bókaútgefenda.
Auk þess er verðlaunahöfum afhent skrautrituð verðlaunaskjöl og verðlaunagripir, hannaðir af Jóni Snorra Sigurðssyni á Gullsmíðaverkstæði Jens; opin bók á granítstöpli með nafni verðlaunahöfundar og bókar hans.

Lokadómnefnd skipuðu Erna Guðrún Árnadóttir, Hildigunnur Sverrisdóttir, Pétur Þorsteinn Óskarsson og Árni Sigurjónsson, sem var jafnframt var formaður nefndarinnar.