Glamour

Flottar yfirhafnir fyrir næsta vetur hjá Burberry

Ritstjórn skrifar
Fjölbreyttar og fallegar yfirhafnir.
Fjölbreyttar og fallegar yfirhafnir.
Þessa dagana fer fram herratískuvika í London þar sem haust - og vetrartískan líður um pallana. 

Breska tískuhúsið Burberry sveik engan á sýningu sinni í vikunni en þar mátti meðal annars sjá mikið úrval af fjölbreyttum og fallegum yfirhöfnum sem svo sannarlega henta vel fyrir íslenskt vetrarveðurfar. 

Gamla góða "duffelcoat", dúnúlpa, síðar ullarkápur með áberandi tölum, víðar úlpur með loðkraga og köflóttar kápur, allt fyrir bæði kynin að þessu sinni. 

Sjáum hér brot af því besta frá Burberry: 

Grátt og tvíhneppt.
Köflótt
Mokkakápan.
Glansandi dúnúlpa.
Vítt, sítt og með loðkraga.
Með gylltum hnöppum.
Þessi gamla góða ...


×