Kúrdar segja tyrkneska herinn skjóta á sig Þórgnýr Einar Albertsson skrifar 28. júlí 2015 07:00 Kúrdar segja Tyrki ráðast á sig í Sýrlandi en Tyrkir neita því alfarið. nordicphotos/afp
YPG, hersveitir Kúrda í norðurhluta Sýrlands nærri landamærunum við Tyrkland, sögðu í gær að tyrkneski herinn skyti á sig nærri sýrlenska bænum Kobane. Bærinn hefur verið skotmark Íslamska ríkisins og var nærri lagður í eyði um síðustu áramót. Síðan þá hafa íbúarnir snúið aftur til bæjarins í þeim tilgangi að endurbyggja hann. Hersveitir Kúrda á svæðinu hafa síðustu misseri verið mikilvægir bandamenn Vesturlanda í stríðinu gegn Íslamska ríkinu. Tyrkneska ríkisstjórnin hefur löngum sætt gagnrýni fyrir meinta mismunun þeirra í garð Kúrda og nú væna Kúrdar þá um að skjóta sig í bakið í baráttunni gegn Íslamska ríkinu. „Í stað þess að ráðast gegn sveitum Íslamska ríkisins ráðast tyrkneskir hermenn á okkur. Við hvetjum tyrknesku ríkisstjórnina til að láta af árásunum,“ segir í tilkynningu frá hersveitunum. Tyrkir neita ásökunum Kúrda en segjast vera með málið í rannsókn. Hersveitir Tyrkja réðust inn í Sýrland í síðustu viku í kjölfar árása Íslamska ríkisins á Tyrkland, meðal annars á hóp Kúrda í Suruc sem fundaði um endurreisn Kobane. Tyrkir vinna nú með Bandaríkjamönnum og Kúrdum við að reka Íslamska ríkið frá norðurhluta Sýrlands.
Mið-Austurlönd Mest lesið Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa Innlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Lækkar eigin laun Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Innlent Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Innlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Erlent Fleiri fréttir Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Landtökumenn börðu og rændu ljósmyndara Washington Post „Atkvæði gegn Kanada er hættuleg blekking“ Sjá meira