Hvenær lýkur "leiðréttingu launa“? Þorsteinn Víglundsson skrifar 23. júní 2015 00:00 Undangenginn vetur hefur einkennst af harðvítugri kjaradeilum en um áratugaskeið. Boðað var til verkfalla sem náð hefðu til tugþúsunda launamanna með tilheyrandi tjóni fyrir fyrirtæki og launafólk. Með nýgerðum kjarasamningum SA og VR, LÍV, Flóabandalags og SGS og frestun aðgerða hjá iðnaðarmönnum tókst að afstýra verkföllum á almennum vinnumarkaði en inngrip Alþingis þurfti til að stöðva verkfall BHM og hjúkrunarfræðinga. Þessar hörðu deilur komu í kjölfar þess að ekki tókst að ná samstöðu um niðurstöðu kjarasamninga á vinnumarkaði á síðasta ári. Þrátt fyrir að þorri vinnumarkaðar hefði samþykkt að feta nýjar slóðir þar sem samið væri um hófstilltar launahækkanir í takti við það sem tíðkast í nágrannalöndunum, töldu nokkrir hópar sig þarfnast sértækra leiðréttinga og sóttu umtalsvert meiri hækkanir með beitingu verkfallsvopnsins. Má þar helst nefna kennara og lækna. Í kjölfarið brustu allar flóðgáttir í kröfugerðum verkalýðsfélaga og hvarvetna var farið fram á tugprósenta launahækkanir á skömmum tíma. Oftar en ekki var vísað til þess að leiðrétta þyrfti kjör viðkomandi hópa vegna launahækkana annarra umfram eigin félagsmenn. Þetta nefnist í daglegu tali höfrungahlaup og hefur verið viðvarandi vandamál á íslenskum vinnumarkaði í áratugi. Í febrúar á þessu ári kom út sameiginleg skýrsla heildarsamtaka á vinnumarkaðnum um launaþróun undanfarinna átta ára og efnahagsforsendur kjarasamninga 2015. Hún sýnir svo ekki verður um villst að launaþróun á vinnumarkaði 2006-2014 var mjög jöfn og meira jafnvægi ríkir á milli launaþróunar einstakra hópa nú en verið hefur um langt skeið. Þótt hækkanir hópanna séu nokkuð svipaðar í heild, þegar litið er yfir tímabilið 2006-2014, er tímasetning þeirra mismunandi, eins og sjá má á meðfylgjandi mynd.Læknar sátu eftir Hjúkrunarfræðingar og aðildarfélög BHM hafa farið fram á „leiðréttingar“ eins og svo margir aðrir og hafa m.a. vísað til kjarasamninga lækna. Samanburður á launaþróun hjúkrunarfræðinga og lækna leiðir í ljós að læknar höfðu búið við mun lakari launaþróun en hjúkrunarfræðingar og aðrir hópar háskólamenntaðra starfsmanna ríkisins, á árunum 2006 til 2014. Með umsömdum hækkunum við lækna um síðustu áramót hafa laun þeirra hækkað um tæplega 60% frá nóvember 2006 sem er sambærileg launaþróun og aðrir hópar á vinnumarkaði hafa notið. Það á einnig við um laun hjúkrunarfræðinga sem hafa hækkað um tæplega 60% á þessu tímabili samkvæmt upplýsingum fjármálaráðuneytisins. Þessi þróun sést skýrt á meðfylgjandi mynd. Kjarasamningar lækna um síðustu áramót jöfnuðu launaþróun þeirra og hjúkrunarfræðinga og geta því kröfur annarra hópa ekki verið reistar á kjarasamningum lækna.Forsenda samninga Í nýgerðum kjarasamningum á almennum vinnumarkaði var samið um 17-20% launahækkanir til ársloka 2018. Það samsvarar liðlega 5% launahækkun að meðaltali á ári. Jafnframt eru forsenduákvæði í samningunum um að semji aðrir hópar á vinnumarkaði um markvert meiri launabreytingar á þessu tímabili veiti það samningsaðilum heimild til að segja þeim upp. Forsenduákvæðið var skilyrði þess að unnt væri að semja til lengri tíma. Fram hefur komið að Bandalag háskólamanna (BHM) krefjist að minnsta kosti 30% hækkunar á launum félagsmanna sinna og þótt lítið hafi verið gefið upp um kröfur stéttarfélags hjúkrunarfræðinga (Fíh) má þó lesa úr yfirlýsingum forsvarsmanna þeirra að gerð sé krafa um 10-15% hækkun umfram það sem BHM semji um, þ.e. að laun hjúkrunarfræðinga myndu hækka um 40-45% ef BHM hefði fengið sínum kröfum framgengt. Af ofangreindum samanburði sést að umtalsvert meiri launahækkanir til félagsmanna BHM og Fíh verða ekki rökstuddar með launaþróun annarra hópa. Hefðu kröfur þeirra náð fram að ganga hefðu forsendur allra kjarasamninga á almennum vinnumarkaði brostið strax á næsta ári og heimild skapast fyrir uppsögn þeirra. Umframhækkanir BHM og Fíh hefðu því orðið efniviður í næstu umferð í höfrungahlaupi á íslenskum vinnumarkaði. Launahækkanir sem þegar hefur verið samið um á vinnumarkaði munu reyna mjög á þanþol íslenska hagkerfisins og líkur eru á vaxandi verðbólgu og minni fjölgun starfa en ella vegna þeirra. Varnaðarorð Seðlabanka Íslands hafa verið mjög skýr hvað þetta varðar og þau ber að taka alvarlega. Frekari launahækkanir myndu aðeins auka enn frekar á vandann með gamalkunnum afleiðingum. Á endanum myndi samkeppnisstaða íslenskra útflutningsatvinnuvega stórskaðast og gengi krónunnar yrði að falla til að rétta hana af. Í þessari hringekju höfum við oft setið áður. Í efnahagslegu samhengi eru kröfugerðir BHM og Fíh ábyrgðarlausar. Að sama skapi veldur það vonbrigðum að stjórnmálaflokkar lýsa fyrirvaralausum stuðningi við kröfugerðir þeirra. Í því felst efnahagslegt ábyrgðarleysi. Sú staða sem skapaðist á vinnumarkaði í vetur áréttar enn nauðsyn þess að breyta vinnubrögðum við gerð kjarasamninga hér á landi. Ákvarðanir um laun í miðlægum kjarasamningum eru meðal mikilvægustu efnahagslegu ákvarðana á hverjum tíma. Efnahagslegur stöðugleiki verður aldrei tryggður hér á landi án ábyrgra kjarasamninga. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Þorsteinn Víglundsson Mest lesið Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman Skoðun Skoðun Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar