Flæðandi og lýriskur djass í Múlanum Magnús Guðmundsson skrifar 16. mars 2015 12:30 Tríó Ástvaldar Zenki Traustasonar ætlar að flytja lög af geisladiskinum Hljóði í Björtuloftum annað kvöld.
Á næstu tónleikum Jazzklúbbsins Múlans, sem fram fara á þriðjudagskvöldið kl. 21 í Björtuloftum í Hörpu, kemur fram tríó píanóleikarans Ástvaldar Zenki Traustasonar. Ástvaldur og félagar munu flytja tónlist af geisladiskinum Hljóði, sem kom út í nóvember 2014. Ásamt Ástvaldi kom fram þeir Birgir Bragason kontrabassaleikari og Matthías M.D. Hemstock trommuleikari. Tónlistin á geisladiskinum Hljóði hefur svipað inntak og fyrri geisladiskur Ástvaldar, Hymnasýn, sem kom út árið 2011. Sem zen-prestur hefur Ástvaldur Zenki orðið fyrir miklum áhrifum frá zen-listum þar sem bent er á innsta eðli hlutanna á sem einfaldastan hátt. Tónlistin er einlæg í einfaldleik sínum og býður hlustandanum að líta inn á við og sameinast andránni. Tónsmíðarnar eiga sér sterkar rætur í djasshefðinni og eru um leið skapandi og óþvingaðar; seiðandi lýrik og flæðandi rytmi.
Menning Mest lesið Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Lífið Þórdís Elva er gengin út Lífið Ólafur Darri herjar á ringlaðan Jamie Dornan Bíó og sjónvarp Engin stereótýpa: „Það breyttist allt þegar ég var í fimmta eða sjötta bekk“ Áskorun Efna til söfnunar í minningu Hennings Lífið Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Lífið Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Lífið Styrkir Minningarsjóð Bryndísar Klöru á Menningarnótt og skorar á aðra Tónlist Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Lífið Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Lífið Fleiri fréttir Eitt myndband selji upp heilu lagerana Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Jón Viðar fellir dóm yfir Ódysseifskviðu án þess að sjá hana Hulda Hákon, Jón Óskar og Krassasig á ListaVestrinu Aðsóknarmet slegið á brúðulistahátíð á Hvammstanga Dreymdi um að á bókasafninu væri bók eftir sig Skólastika Gamalíelsdóttir vekur undrun Íslendinga Sýning Bjarkar bæði væmin og stórkostleg og leggur til stofnun Bjarkarsafns Sjá meira