Hæg breytileg átt eða norðan bál Magnús Guðmundsson skrifar 12. mars 2015 12:30 Anna María Bogadóttir, yfirumsjónarkona verkefnisins, segir verkefnið búa yfir umtalsverðri sérstöðu með þeirri þverfaglegu nálgun sem er grunnur verkefnisins. Visir/Vilhelm
Á morgun kl. 17 verður opnuð í Hafnarhúsi Listasafns Reykjavíkur einkar áhugaverð sýning fyrir alla sem láta sig varða húsnæðis- og hverfamál framtíðarinnar. Sýningin Hæg breytileg átt er afsprengi samnefnds verkefnis sem varð til í kjölfar þeirra aðstæðna sem sköpuðust á byggingamarkaði við efnahagshrunið. Þar gafst kjörið tækifæri til þess að staldra við og endurskoða viðmið, áherslur og leiðir í íbúða- og byggðarþróun. Anna María Bogadóttir arkitekt er yfirumsjónarkona verkefnisins og hún segir að Hæg breytileg átt búi yfir umtalsverðri sérstöðu varðandi þróun íbúða- og hverfismála. „Það hefur auðvitað alltaf hver kynslóð fyrir sig verið að takast á við þetta og staðið frammi fyrir spurningunni hvernig við viljum sjá þessi mál þróast á komandi árum og áratugum.veðurofsi Snjóþungi og hvassviðri reyndist tjaldinu yfir portinu í Hafnarhúsinu um megn og því kom til þess að fresta varð sýningaropnuninni um sólarhring með öryggi og þægindi gesta að leiðarljósi. Fréttablaðið/VilhelmÞað voru stofnaðir fjórir þverfaglegir hópar sem innihéldu sérfræðinga á ólíkum sviðum. Þarna mátti finna arkitekta, hönnuði, sálfræðinga, hagfræðinga, viðskiptafræðinga, myndlistarmenn og rithöfunda svo eitthvað sé nefnt. Aðalatriðið var að hafa þetta fólk úr ólíkum áttum, með ólíkan bakgrunn, menntun og reynslu. Hóparnir unnu síðan saman að tillögum sínum í fjóra mánuði og nutu stuðnings verkefnisstjóra og ráðgjafa á ýmsum sviðum. Þessi þverfaglega nálgun er ný hérlendis en það verður ekki síður spennandi að sjá þetta komast á næsta stig með tilkomu sýningarinnar og þar með aðkomu almennings.“ Anna María segir að það hafi verið afar áhugavert að fylgjast með þessari vinnu. „Það komu allir með opinn huga að þessu verkefni og fögnuðu því tækifæri að fá að leita leiða og lausna. Sjálf er ég arkitekt og eftir að hafa fylgst með þessari vinnu finnst mér að þetta ætti að vera sjálfsagður hluti af ferlinu. Á sýningunni gefur svo að líta fjórar eiginlegar tillögur að því hvernig við getum í framtíðinni lifað og þroskast innan borgarinnar. Ég vona því innilega að þetta verði til þess að auka rannsóknarvinnu og fjölbreytileika þeirra radda sem koma að þróun íbúðabyggðar framtíðarinnar. Svona verkefni myndar tengsl og reynslu og þannig þróast þetta áfram hægt og rólega. Að mínu mati á þetta líka við samfélagið almennt. Að opna hugann fyrir ólíkum greinum og hugmyndum skilar okkur miklu fremur fram á við og gerir okkur frekar kleift að horfa á stóra samhengið.“ Aðstandendur sýningarinnar og Listasafn Reykjavíkur fengu eins og margir að finna fyrir veðrinu sem gekk yfir suðvesturhornið á þriðjudag og aðfaranótt miðvikudags. Tjald sem strengt er yfir port safnsins sem er nýtt sem sýningarrými gaf sig að hluta undan stormi og stórhríð. „Tjaldið hreinlega gaf sig undan snjóþunga og stormi að hluta. Það er óneitanlega grátbroslegt að þetta skuli koma fyrir þegar til stendur að opna sýningu undir heitinu Hæg breytileg átt, en þó engu að síður dálítið viðeigandi líka. Í bókinni sem er gefin út samhliða sýningunni er einmitt að finna grein eftir Andra Snæ Magnason sem ber heitið Hæg breytileg átt eða norðan bál. Það er þó rétt að taka fram að þetta hefur aldrei gerst áður og portið er fyllilega öruggt. Við tókum ákvörðun um að fresta opnuninni um sólarhring svo þetta fari nú allt saman vel fram og það fari vel um alla okkar gesti.“
HönnunarMars Menning Mest lesið Stormur fellur á prófinu Gagnrýni Foreldrar mæti með lögfræðing með sér í skólann Lífið Ástin blómstrar hjá Steinunni Lífið Bóndinn Sigríður Hlynur missti af 350 þúsund krónum Lífið Stórafmælið hefur afleiðingar Lífið Með engan áhuga á kynlífi og vill ekki ræða það Lífið Björgunarsveitin kom Kötlu til bjargar Lífið Ofurfyrirsætan opnar sig í fyrsta sinn um ástina Lífið Miðpunktur kvöldsins í gegnsæjum samfestingi á árshátíð RÚV Lífið Skaust fyrr af æfingu og sótti milljónir í verðlaunafé Lífið Fleiri fréttir Sjóðheitir listamenn mynda sterka heild Rif eftir Önnu Júlíu sigraði og verður á Héðinsreit Gerir upp tólf ára samband við barnsmóður sína með sýningu og bók Samtal við þann fyrsta til að taka ljósmyndir á Íslandi Tilnefningar til íslensku myndlistarverðlaunanna Birgitta Björg, Ingunn og Rán Flygenring fengu Fjöruverðlaun Tjörnin trónir á toppnum Borgarstjórar og forsetar á ólgandi listasýningu Hendur sem káfa, snerta og breyta „Á fyrsta uppistandi er maður að skíta á sig“ Eiríkur og Þórdís tilnefnd til bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs Tvíburabræður með myndlistarsýningu „Hvenær er hægt að leita í óskilamun hjá ykkur?“ Uglumorð, auglýsingar og dauði internetsins Brynhildur hættir í Borgarleikhúsinu Mótsvar til að lifa af andlega og sökkva ekki í hyldýpið Líf og fjör meðal guða og manna Dægradvöl Benedikts meinfýsið rant biturs manns Kennir Instagram mökum að taka almennilegar myndir Úr drullumalli og nornaseiði í listnám í Bandaríkjunum Sjá meira