Hrist fram úr erminni Rikka skrifar 7. mars 2015 12:00 Vísir/Getty
Hristingar eru eitt af því besta sem ég fæ mér í morgunmat og börnin mín líka. Ég geri sérstakar útgáfur handa þeim sem ég nefni eftir vinsælustu ofurhetjunum hverju sinni. Ég, eins og aðrir, vakna þó stundum aðeins of seint og hef þá ekki tíma til þess að fara að saxa, undirbúa og hvað þá þrífa eftir eldamennskuna. Í stað þess að rjúka út í morgunmyrkrið dag eftir dag með tóman maga ákvað ég að reyna að finna lausnir á þessu vandamáli mínu.1 Keyptu inn á sunnudögum Vertu búin að ákveða uppskriftir að hristingum fyrir vikuna og keyptu inn hráefnið á sunnudegi. Það sem þig vantar helst eru: - frosnir ávextir (jarðarber, bláber, mangó, lárperur) - ferskt salat (spínat, grænkál) - ferskar jurtir (engifer, túrmerik) - ferskir ávextir (bananar, epli, sítrusávextir) - hnetur og fræ (chia-fræ, hörfræ, kasjúhnetur) - olíur og smjör (kókosolía, hnetusmjör, omega-olíur) - vökvi (möndlumjólk, kókosvatn, safar) - næringarduft, prótínduft, bee pollen, maca-duft o.fl.2 Skerðu niður grænmetið og ávextina sem þú þarft fyrir vikuna og settu þá í plastbox sem má frysta, það er miklu umhverfisvænna en að setja allt í plastpoka eins og margir gera. Ef þú ert að undirbúa fleiri en eina uppskrift getur verið ágætt að skrifa á boxin þann vökva sem á að blanda í hristinginn.3 Það skiptir svolitlu máli að raða rétt í blandarann. Byrjaðu á því að setja vökvann og létta hráefnið fyrst og endaðu svo á því að setja frosnu bitana saman við. Þá blandast þetta allt betur saman. Ekki gleyma því að setja lokið á, ég veit um þó nokkur dæmi þar sem það hefur gerst.4 Helltu drykknum úr og njóttu strax eða taktu með þér í ferðaglas. Settu volgt vatn upp að helmingi blandaraglassins, einn dropa af uppþvottalegi og settu aftur í gang. Sko, nú er þrifunum lokið á örskotsstundu.
Boozt Heilsa Uppskriftir Mest lesið Gugga í gúmmíbát fagnaði afmæli sínu með heitustu guggum landsins Lífið Fagnar því að hafa klárað „erfiðustu kappreiðar í heimi“ Lífið Söguleg sátt milli há- og lágmenningar á Klapparstíg Lífið Skjótt skipast veður í slaufun: Íhugar endurkomu Lífið Hall og Oates ná sáttum Lífið Embla Wigum og Lindsey Lohan glæsilegar á rauða dreglinum Lífið Opnaði sig um skilnaðinn: „Hún eldar ekki, þrífur ekki og virðist ekki mjög móðurleg“ Lífið Ragga Nagli minnir á „grænu flöggin“ í samböndum Lífið Hannaði innsetningargallann í þrívíddarforriti vegna tímaþröngar Lífið Stjúpbörn- og foreldrar: „Alltof mörg tilfelli þar sem þetta gengur ekki nógu vel“ Lífið