Forsætisráðherra Georgíu segir af sér Atli Ísleifsson skrifar 23. desember 2015 18:29 Irakli Garibashvili er náinn samstarfsmaður milljarðamæringsins Bidzina Ivanishvili, en flokkur þeirra vann mikinn sigur á fyrrverandi forsætisráðherranum Mikhail Saakashvili í kosningum 2012. Vísir/AFP
Irakli Garibashvili sagði af sér embætti sem forsætisráðherra Georgíu fyrr í dag. Hinn 33 ára Garibashvili tilgreindi ekki um ástæðurnar, en sagðist áfram ætla að starfa sem „trúr hermaður fyrir föðurlandið“. Garibashvili tilkynnti um afsögnina í sjónvarpsávarpi, en hann tók við embætti forsætisráðherra í nóvember 2013. Garibashvili er náinn samstarfsmaður milljarðamæringsins Bidzina Ivanishvili, en flokkur þeirra vann mikinn sigur á fyrrverandi forsætisráðherranum Mikhail Saakashvili í kosningum 2012. Vangaveltur hafa verið uppi að undanförnu um að Garibashvili myndi segja af sér embætti til að einblína á flokksstarfið fyrir þingkosningar sem fram fara í landinu í nóvember að ári. Vinsældir flokksins hafa minnkað mikið og hafa kjósendur lýst yfir óánægju með að flokknum hefur ekki tekist að bæta lífskjör í landinu. Fjölmiðlar hafa einnig velt vöngum yfir hvort Garibashvili stefni á að verða næsti borgarstjóri höfuðborgarinnar Tbilisi. Giorgi Margvelashvili, forseti Georgíu, hefur nú sjö daga til að tilnefna nýjan forsætisráðherra sem þarf að njóta meirihlutastuðnings á þinginu.
Georgía Mest lesið Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Innlent Tekur við Bolsonaro opnum örmum Erlent Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Innlent Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka Innlent „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Innlent Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Innlent Fleiri fréttir Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Sjá meira