Heilbrigð trú! Gunnar Jóhannesson skrifar 10. desember 2015 07:00 Trúmálaumræðan er nokkuð fjörleg í dag, en misjafnlega málefnaleg eins og gengur. Greinin „Á traustum grunni vísindalegra staðreynda“ (Fréttabl., 6.11.15) er nýlegt innlegg inn í þá umræðu þar sem látið er að því liggja að trúað fólk „afsali sér heilbrigðri skynsemi og rökhyggju en leggi í blindni trúnað á ýmiss konar kraftaverkasögur“. Sú staðhæfing, sem er alls ekki vísindalegs eðlis - og umræddur höfundur gerir ekki tilraun til að rökstyðja, - vekur upp ýmsar spurningar og gefur ágætt tilefni til að minna á eitt og annað. Sú skoðun er algeng að trú og vísindi séu andstæður. Litið er svo á að með tilkomu og framþróun vísinda sé trú og trúarlegar skýringar á eðli lífsins og tilverunnar úreltar leifar frá liðnum tíma. Jafnvel er litið svo á að vísindi hafi afsannað tilvist Guðs. Hitt er annað mál að vísindi geta ekki afsannað tilvist Guðs af þeirri ástæðu að þau fást við hinn náttúrulega og efnislega heim. Guð er handan hans. Guð er orsök alheimsins og ekki eitthvað sem vísindi geta afsannað í valdi eigin aðferða. Vísindamaður sem segist hafa afsannað tilvist Guðs er ekki lengur að fást við vísindi eða hinn náttúrulega heim í vísindalegum skilningi heldur heimspeki eða guðfræði. Það er til dæmis afar ófyrirsjáanlegt að nokkur fái nóbelsverðlaun í eðlisfræði fyrir að sýna fram á að Guð er ekki til.Takmarkanir vísinda Vísindi eru með öðrum orðum takmörkuð. Eins og eðlisfræðingurinn og nóbelsverðlaunahafinn Peter Medewar sagði er engin leið fljótlegri til að koma óorði á vísindi en að segja þau eiga svar við öllum spurningum og að þær spurningar sem vísindi svari ekki séu merkingarlausar. Að mati Medawar eru vísindi augljóslega takmörkuð enda geti þau ekki svarað grundvallarspurningum varðandi tilurð tilverunnar, tilgang lífsins og örlög, eða hvað sé gott, rétt og fallegt. Vísindi spyrja með öðrum orðum takmarkaðra spurninga og geta ekki náð utan um eða útskýrt allt sem leitar á huga mannsins eða er fólgið í reynslu hans.Vitnisburður sögunnar Það viðhorf að trú og vísindi fari ekki saman stenst illa sögulega skoðun. Brautryðjendur nútíma vísinda voru trúaðir menn á borð við Boyle, Galíleó, Newton, Kepler, Mendel, Maxwell o.fl. Þeir sáu enga mótsögn á milli vísinda og guðstrúar. Það sama á við um marga vísindamenn í nútímanum. Það var heldur ekki tilviljun að vísindi komu til sögunnar í Evrópu 16. aldar sem um langan tíma hafði mótast af hinni kristnu heimsmynd. Eins og C.S. Lewis komst að orði urðu menn vísindalegir í hugsun vegna þess að þeir gerðu ráð fyrir náttúrulögmálum; og þeir gerðu ráð fyrir náttúrulögmálum vegna þess að þeir trúðu á þann sem setti náttúrunni lögmál sín.Bjagaður skilningur á Guði Þeir sem halda því fram að vísindi og trú séu í mótsögn ganga gjarnan út frá bjagaðri guðsmynd. Þá er litið svo á að Guð sé ekkert annað en uppfyllingarefni í takmarkaða þekkingu mannsins. Með öðrum orðum finnum við Guði stað þar sem vísindaleg útskýring er ekki fyrir hendi. Eftir því sem vísindi útskýri meira verði minna pláss fyrir Guð. En slíkur skilningur ber ekki Guði kristinnar trúar vitni. Guð kristinnar trúar er sá sem er á bak við tjöldin. Hann er orsakavaldurinn. Hann er á bak við það sem við vitum og það sem við vitum ekki. Hann er hinn persónulegi skapari sem leiddi fram alheiminn og viðheldur tilvist hans.Ólíkar útskýringar en ekki mótsagnakenndar Vísindin rannsaka alheiminn. Þau skoða úr hverju hann er gerður, hvers eðlis hann er og hvernig hann virkar. Þegar vísað er til Guðs annars vegar og vísinda hins vegar til að útskýra alheiminn er um að ræða útskýringar af ólíkum toga – sem þó er gjarnan ruglað saman. Að stilla fólki upp við vegg og biðja það að velja á milli vísinda og Guðs er líkast því að sýna manni Ford T bíl og biðja hann að velja á milli tveggja mögulegra útskýringa á honum. Önnur útskýringin eru náttúrulögmálin, lögmál eðlisfræðinnar, vélfræðinnar, aflfræðinnar o.s.frv. Hin útskýringin er Henry Ford sjálfur. Það sjá allir að slíkir afarkostir eru fráleitir því hér er um tvær jafngildar útskýringar að ræða enda þótt ólíkar séu. Báðar eru nauðsynlegar og réttar. Við þurfum hvort tveggja í senn vísindalega útskýringu á bílnum með tilliti til eðlisfræðilegra lögmála og persónulega útskýringu með tilliti til orsakavalds. Þegar alheimurinn er útskýrður með vísan til Guðs sem orsakavalds er einfaldlega um að ræða útskýringu af öðrum toga en hina vísindalegu útskýringu. Þær eru hins vegar ekki í mótsögn eða rekast hvor á aðra. Henry Ford keppir ekki við lögmál eðlisfræðinnar sem útskýring á Ford T bíl frekar en Guð keppir við vísindi þegar kemur að því að útskýra alheiminn. Það væri ennfremur fráleitt að halda því fram að þar sem við getum útskýrt með vísindalegum hætti hvernig Ford T bíll virkar megi draga af því þá ályktun að Henry Ford hafi aldrei verið til. Í raun er það svo að eftir því sem við skiljum alheiminn betur verður auðveldara að dásama hugvitssemi Guðs sem á bak við hann er. Þegar Newton uppgötvaði þyngdarlögmálið leit hann ekki svo á að hann þyrfti ekki framar að leiða hugann að Guði. Þvert á móti. Í bók sinni Principia Mathematica lýsir hann þeirri von sinni að uppgötvun sín sannfæri fólk um tilvist og mikilfengleika Guðs. Með öðrum orðum, eftir því sem hann skildi eðli alheimsins betur þeim mun meir dáðist hann að snilli Guðs. Sá er og hefur alltaf verið hinn kristni skilningur: „Himnarnir segja frá Guðs dýrð, og festingin kunngjörir verkin hans handa.“ (Sálm. 19.1) Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Nóbelsverðlaun Mest lesið Voru lífeyrisréttindi markvisst tekin af opinberum starfsmönnum og var engin leiðrétting launa? Gunnar Alexander Ólafsson,Sveinn Ólafsson Skoðun Hvað sér unga fólkið sem ég sé ekki? Gunnar Salvarsson Skoðun Evrópusambandið og fiskveiðar Finnur Torfi Magnússon. Skoðun Hlutdrægni RÚV í ESB umræðunni Birgir Finnsson Skoðun Iðumálið frá upphafi frá sjónarhóli Stóru-Laxárdeildar Esther Guðjónsdótti Skoðun Óttinn sem gerir fólk leiðitamt og þörfin að tilheyra Helga Þórólfsdóttir Skoðun Bíddu! Erum við ekki að kjósa um það sama? Yngvi Ómar Sigrúnarson Skoðun Stóra spurningin um íslenskt fiskeldi Björn Hembre,Daníel Jakobsson,Vidar Aspehaug Skoðun Gögnin á borðið Steindór Þórarinsson Skoðun Ég hélt að ég vissi hvað fullveldi væri Hilmar Kristinsson Skoðun Skoðun Skoðun Hljóðlát endalok íslensku vefumsjónarkerfanna Birgir Hrafn Birgisson skrifar Skoðun Það borgar sig að skoða kostina Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Hvað sér unga fólkið sem ég sé ekki? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Hlutdrægni RÚV í ESB umræðunni Birgir Finnsson skrifar Skoðun Voru lífeyrisréttindi markvisst tekin af opinberum starfsmönnum og var engin leiðrétting launa? Gunnar Alexander Ólafsson,Sveinn Ólafsson skrifar Skoðun Evrópusambandið og fiskveiðar Finnur Torfi Magnússon. skrifar Skoðun Það er alltaf til byssa. Vertu blómið! Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar Skoðun „Hagræðingar” í Reykjanesbæ Halldóra Fríða Þorvaldssdóttir,Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Óttinn sem gerir fólk leiðitamt og þörfin að tilheyra Helga Þórólfsdóttir skrifar Skoðun Tennur og tryggingar Guðjón Sigurbjartsson skrifar Skoðun Iðumálið frá upphafi frá sjónarhóli Stóru-Laxárdeildar Esther Guðjónsdótti skrifar Skoðun Íslenska fánann á ekki að nota til skemmdarverka Ugla Stefanía Kristjönudóttir Jónsdóttir skrifar Skoðun Stóra spurningin um íslenskt fiskeldi Björn Hembre,Daníel Jakobsson,Vidar Aspehaug skrifar Skoðun Bíddu! Erum við ekki að kjósa um það sama? Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Hver stjórnar ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Vantar okkur líka lesefni sem börn hafa áhuga á að velja sjálf? Birgir Hrafn Birgisson skrifar Skoðun Verum góð við hvort annað Eva Pandora Baldursdóttir skrifar Skoðun Ég hélt að ég vissi hvað fullveldi væri Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Umburðarlyndið sem geltir Sveinn Kristjánsson skrifar Skoðun Börn fá aðeins eina bernsku Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Gögnin á borðið Steindór Þórarinsson skrifar Skoðun Röng spurning í réttri umræðu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Vönduð hönnun er ábyrg uppbygging Björg Torfadóttir skrifar Skoðun Markaðsverð raforku í áttfalt heimilisverð Símon Einarsson skrifar Skoðun Aukin gjaldtaka vinnur gegn dreifingu ferðamanna Sara Sigmundsdóttir skrifar Skoðun Svíkjum ekki gerða samninga Bragi Bjarnason skrifar Skoðun Danir ætla að verja Grænland Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Já eða nei? Kosningar 29. ágúst 2026 Grétar H. Óskarsson skrifar Skoðun Þegar innviðaskuldin gjaldfellir samfélagssáttmálann Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Ekki sjá eftir atkvæðinu þínu! Arnar Steinn Þórarinsson skrifar Sjá meira
Voru lífeyrisréttindi markvisst tekin af opinberum starfsmönnum og var engin leiðrétting launa? Gunnar Alexander Ólafsson,Sveinn Ólafsson Skoðun
Skoðun Voru lífeyrisréttindi markvisst tekin af opinberum starfsmönnum og var engin leiðrétting launa? Gunnar Alexander Ólafsson,Sveinn Ólafsson skrifar
Skoðun „Hagræðingar” í Reykjanesbæ Halldóra Fríða Þorvaldssdóttir,Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar
Skoðun Íslenska fánann á ekki að nota til skemmdarverka Ugla Stefanía Kristjönudóttir Jónsdóttir skrifar
Skoðun Vantar okkur líka lesefni sem börn hafa áhuga á að velja sjálf? Birgir Hrafn Birgisson skrifar
Voru lífeyrisréttindi markvisst tekin af opinberum starfsmönnum og var engin leiðrétting launa? Gunnar Alexander Ólafsson,Sveinn Ólafsson Skoðun