Fjölskyldan er ein nokkurra fjölskyldna sem sótt hafa um dvalarleyfi hér á landi en ekki fengið. Voru líklega um tuttugu manns sótt í nótt. Í þessari fjögurra manna fjölskyldu er þriggja ára drengur með slímseigjusjúkdóm en DV hefur fjallað um fjölskylduna í vikunni.
Fjallað var um aðra albanska fjölskyldu í kvöldfréttum Stöðvar 2 sem einnig fór af landi brott í nótt. Í þeirri fjölskyldu er ungur drengur sem glímir við hjartamein.
Fréttina má sjá hér að neðan.
Mikil reiði og örvænting greip um sig á Facebook undir miðnætti í gær þegar spurðist að til stæði að senda ætti lögreglulið til að fylgja fjölskyldunni úr landi í nótt. Fólki er hreinlega misboðið. Vísir og Stöð 2 hefur fjallað um aðstæður annarrar albanskrar fjölskyldu sem hefur aðlagast lífinu hér vel og hefur Ólöf Nordal innanríkisráðherra verið grátbeðin um að endurskoða afstöðu sína og sýna fjölskyldunni vægð, en allt kemur fyrir ekki.
Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir leikkona og ritstjóri ritar á sína Facebooksíðu:
„Fjölskyldan frá Albaníu verður víst send úr landi í nótt með langveikt barn og faðirinn á von á því að vera tekinn af lífi í heimalandi sínu. Megi frú Ólöfu Nordal ekki koma dúr á auga framar - ef af verður.“

Og ekki er laust við að hrein og klár örvænting hafi sýnt sig meðal margra þeirra sem tjáðu sig á Facebook seint í gærkvöldi. Auður Jónsdóttir rithöfundur vildi grípa til aðgerða, og kom upp sú hugmynd að mynda einskonar vegatálma til að reyna að aftra því að lögreglan kæmist með fjölskylduna út á Leifsstöð:
„Það á að senda burt fjölskyldu í skjóli nætur, að ég held núna í nótt, þau verða sótt klukkan eitt. Reglurnar flokka þau í ruslatunnu því þau eru frá Albaníu. En drengurinn er langveikur og bæði börnin hafa aðlagast vel hér á leikskóla og skóla og eignast góða vini, faðirinn hefur atvinnurekanda sem styður hann og ábyrgist og þykir vænt um fjölskylduna. Þau eru algjörlega sjálfbær hér á landi, sagði hann við mig í símann áðan, þó að honum leiðist orðið sem slíkt. Heimilisfaðirinn á á hættu að vera drepinn í Albaníu og þar fær sonurinn ekki þá læknishjálp sem hann þarf á að halda. Hann nær ekki andanum í verstu köstunum og er bara þriggja ára. Getum við tekið höndum saman að hjálpa þeim? Það hlýtur að vera leið. Það verður náð í þau eftir þrjá tíma ef ég skil þetta rétt og þau flutt úr landi með leiguflugi. Er einhver hérna með gsm hjá Ólöfu Nordal? (Er nú búin að reyna að hringja en það svarar ekki). Það skal enginn segja mér að það sé ekki hægt að gera undanþágu af mannúðarástæðum í þessu máli.“
Ég er ekki lengur Íslendingur
Kristinn Hrafnsson blaðamaður hafði þessi orð um gerninginn á sinni Facebooksíðu:
„Þessi ríkisstjórn má ekkert aumt sjá, án þess að sparka í það. Í skjóli nætur er lögreglumönnum sigað á leikskólabörn til að undirstrika að á Íslandi skal viðhaldið ógeðslegu samfélagi með hjartleysi, græðgi og ofbeldi. Skammastu þín Ólöf Nordal. Þessi svívirða mun hér eftir skilgreina þig og öll þín verk.“
Nína Dögg Filippusdóttir leikkona var meðal fjölmargra sem átti vart orð í eigu sinni: „Þetta er skammarlegt!“ Og Diddi Friðjófur Ísfeld tónlistarmaður sagði: „Ég held að ég sé ekki íslendingur.“

Samúel Jón Samúelsson tónlistarmaður skammaðist sín einnig fyrir sitt þjóðerni:
„Þar fór nætursvefninn :( Þvílíkur hrottakapur.
Af hverju má þetta fólk ekki búa hér? Ég skammast mín fyrir ykkur aumu þingmenn að hafa ekki gengið í málið. Mikið vildi ég að þið lögreglumenn hefðu hugrekki til að neyta að framfylgja þessu óréttlæti. Stjórnin er nýbúin að svína á öryrkjum og eldri borgurum á meðan hún þiggur eigin launahækkanir og nú þetta.
Einu sinni var stolt þjóð. Mig langar að hún endurheimti mannorð sitt.“
Og enn öðrum tónlistarmanni var brugðið: „Er þetta virkilega að gerast ??????“ spyr Bjartmar Guðlaugsson.
Mun snúa sér undan ef Ólöf Nordal ber fyrir augu
Ingunn Snædal skáld vandaði ríkisstjórninni ekki kveðjurnar: „Þetta er ekki hægt. Verstu stjórnvöld Íslandssögunnar toppa sig enn.“
Og Illugi Jökulsson rithöfundur er miður sín: „Aha. Ólöf Nordal virðist ekkert ætla að gera. Að minnsta kosti tvær fjölskyldur með veik börn verða send úr landi í nótt eða fyrramálið. Önnur er í Barmahlíð 1. Ég mun snúa mér undan ef Ólöfu Nordal ber fyrir augu mín héðan í frá.“

Jón Trausti Reynisson ritstjóri skrifar: „Fjögurra manna fjölskylda bíður nú í Barmahlíð eftir að lögreglan komi og fjarlægi hana úr landi. Börnin sváfu með úrklippubækur úr leikskólanum á náttborðinu síðustu nóttina sína á Íslandi.“
Og Hörður Ágústsson í MacLand segir: „Þetta er algjör helvítis viðbjóður. Skammast mín fyrir að vera manneskja þegar svona lýðst.“
Þessi dæmi sem hér eru nefnd að ofan eru aðeins brot af þeim athugasemdum sem hrönnuðust upp seint í gærkvöldi og nótt á Facebook vegna málsins og má ljóst vera að fjölmörgum er misboðið og telja þetta ömurlegt upphaf á jólahátíð á Íslandi.
Undirskriftasöfnun er hafin þar sem skorað er á Ólöfu Nordal að segja af sér vegna ákvörðunar að vísa fjölskyldunni úr landi.