Napoli náði bara að minnka forskot Inter í 4 stig Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 13. desember 2015 19:06 Kalidou Koulibaly og Edin Dzeko í baráttu í leiknum í kvöld. Vísir/Getty
Napoli og Roma gerðu markalaust jafntefli í 16. umferð ítölsku knattspyrnunnar í dag. Napoli er því fjórum stigum á eftir toppliði Internazionale. Þetta var mjög fjörugur leikur þrátt fyrir markaleysið og með hreinum ólíkindum að boltinn fór ekki í markið. Liðsmenn Napoli fengu fjölda færa til að skora í þessum leik. Marek Hamsík fékk tvö bestu færin, fyrst skaut hann framhjá en svo varði Wojciech Szczesny frá honum. Daniele De Rossi skoraði mark fyrir Roma undir lok leiksins en markið var dæmt af. Dómari leiksins taldi að boltinn hefði farið útaf vellinum í aðdragandanum. Napoli hafði fyrir leikinn skoraði 49 mörk í 20 leikjum í öllum keppnum en þurfti að sætta sig við markaleysi og tvö töpuð stig. Eftir að Napoli vann 2-1 sigur í toppslagnum við Internazionale í lok nóvember hefur liðið aðeins náð í eitt stig út úr tveimur síðustu leikjum. Internazionale er aftur á móti með fullt hús stiga í leikjunum eftir tapið sem hefur skilað liðinu fjögurra stiga forskot á Napoli á toppi ítölsku A-deildarinnar.
Ítalski boltinn Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport „Hún var frábær eiginkona, mögnuð móðir sem og amma“ Fótbolti „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ Enski boltinn McGregor fær ekki keppinaut fyrr en hann er leikfær á ný Sport Dubois rústaði Joshua: „Ég er stríðsmaður allt til enda“ Sport „Það hlaut að koma að því“ Íslenski boltinn „Allir vilja að við verðum þurrkaðir af yfirborði jarðar“ Enski boltinn Dagskráin í dag: Formúla 1, Bestu deildirnar, Sveindís Jane og NFL Sport Iðrast gjörða sinna: „Var klárlega rangt af mér“ Íslenski boltinn Norris á ráspól í Singapúr Formúla 1 Fleiri fréttir Bellingham kallaði dómarann skíthæll Gerðu grín að Mourinho: Sá grenjandi „Allir vilja að við verðum þurrkaðir af yfirborði jarðar“ „Hún var frábær eiginkona, mögnuð móðir sem og amma“ „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ Jafnt hjá PSG og Galatasaray vann stórleikinn í Tyrklandi Setja pressu á Barcelona með sigri Sjáðu mark Brynjars Inga og stoðsendingu Viðars Ara „Ekki jafn auðvelt og lokatölurnar gáfu til kynna“ „Við fórum beint úr því að vera ömurlegir í frábærir“ Þriðja markalausa jafntefli Juventus í röð „Það hlaut að koma að því“ Gestirnir ívið betri en engin mörk skoruð Uppgjörið: KA bikarmeistari í fyrsta sinn Rúnar Þór lagði upp og setti boltann í eigið net Willum Þór gaf stoðsendingu Fulham fyrst til að vinna Newcastle og dramatík í Birmingham og Southampton Spurs vann þrátt fyrir að lenda undir eftir hálfa mínútu Díaz með tvö og Liverpool tyllti sér á toppinn Bayern búið að skora tuttugu mörk í síðustu þremur leikjum Selfoss og KFA mætast í úrslitum Ásdís Karen skoraði í þriðja sigri Lillestrøm í röð Sjö KR-ingar heiðraðir á Anfield Orri í byrjunarliði Real Sociedad sem mistókst enn og aftur að skora Jackson í stuði þegar Chelsea fór létt með West Ham Lið Ísaks og Valgeirs bjargaði stigi á dramatískan hátt Endurkoma hjá Dagnýju „Er ekki bara kominn tími til að breyta þessu?“ Pössuðu að leikmenn Fulham væru aldrei einar með Al Fayed „Okkar að stöðva drauma þeirra í fæðingu“ Sjá meira